Virðir

Virðir er hugbúnaðarkerfi sem heldur utan um skuldabréf hvort sem um er að ræða skuldir eða skuldabréfaeign.

Kerfið er afar þægilegt og einfalt í notkun og auðveldar alla vinnu þeirra sem með skuldabréf sýsla. Kerfið sýnir stöðu einstakra skuldabréfa eða skuldabréfasafna á hverjum tíma og styður allar helstu greiðslutegundir skuldabréfa eins og jafnar greiðslur (annuitet), jafnar afborganir, svokölluð kúlubréf, kaupleigusamninga eða óregluleg skuldabréf.

 

Virðir skiptist í fjóra hluta:

  • afgreiðsluhluta
  • afborganahluta
  • útprentunarhluta 
  • stoðtöfluhluta

Afgreiðsla

Afgreiðsluhlutinn sér um útgáfu og skráningu skuldabréfa auk sölu og uppgreiðslu þeirra. Úr afgreiðsluhlutanum má m.a. prenta út eða fá upp á skjá einstaka skuldabréf á kunnuglegu eyðublaðaformi og greiðsluflæði hvers þeirra. Í afgreiðsluhlutanum er boðið upp á að reikna út ýmsar stærðir eins og tillögu að verði skuldabréfs miðað við gefnar forsendur hvort sem skuldabréf er keypt eða selt.

Afborganir

Afborganahluti Virðis reiknar út einstakar greiðslur af skuldabréfum hvort sem þær eru hlutageiðslur, umframgreiðslur eða fullnaðargreiðslur og í afborganahlutanum eru greiðslurnar skráðar og þar eru bakfærslur og leiðréttaingar gerðar þegar slíkt er nauðsynlegt. Þegar umframgreiðsla eða hlutagreiðsla er skráð reiknar kerfið út breytt greiðsluflæði.

Útprentun

Útprentunarhlutinn sér um ýmis konar útprentun og gerð fjölbreyttra yfirlita úr kerfinu en boðið er upp á mikið úrval staðlaðra útprentana og yfirlita eins og yfir greiðsluflæði, næsta árs afborganir, eftirstöðvar o.s.frv.

Stoðtöflur

Í stoðtöfluhluta Virðis er öllum töflum kefisins viðhaldið. Hér er um að ræða töflur eins og yfir vaxta- og vísitöluflokka ásamt gildi vísitalna, flokka skuldabréfa, geymslustaði skuldabréfa, veðtegundir og ýmislegt annað.

Dæmi um þjónustur sem Virðir býður upp á:

  • Þægileg notendaskil
  • Fjölbreytta möguleika á flokkun skuldabréfa
  • Flestar gerðir skuldabréfa studdar
  • Fjölbreytta möguleika á vexta og vísitölu- og gengistengingum
  • Núvirðisreikning
  • Hlutagreiðslur og umframgreiðslur
  • Auðveldar bakfæslur og leiðréttingar
  • Tengingu við fjárhagsbókhald
  • Yfirlit yfir greiðsluflæði
  • Yfirlit yfir næsta árs afborganir
  • Fjölda annarra yfirlita og útprentana

 

Prentvæna útgáfu á pdf forminálgast hér.
Nánari upplýsingar
skyrr@skyrr.is