Skjalagáttin
Skeytamiðlun Skýrr er þjónusta fyrir rafræn viðskipti í atvinnulífinu. Þjónustan er miðlæg og gerir mögulega rafræna dreifingu pantana og reikinga milli aðila sem tengjast miðluninni. Þjónustan hentar jafnt opinberum aðilum sem fyrirtækjamarkaði.Helstu kostir Skeytamiðlunar Skýrr
Markviss notkun á Skeytamiðlun Skýrr með hentugum viðskiptalausnum getur haft fjölbreytilegan ávinning.
- Fækkar skráningarvillum
- Flýtir fyrir skráningu gagna
- Bætir upplýsingagjöf
- Einfaldar ferla
- Hraðar vinnslu á pöntunum
- Einfaldar afgreiðslu reikninga
- Örugg rafræn viðskipti

