Oracle viðskiptalausnir
Oracle er eitt af stærstu hugbúnaðarfyrirtækjum í heiminum í dag. Síðustu þrjátíu árin hefur fyrirtækið framleitt hugbúnað og þjónustu sem tryggja að viðskiptavinir búi yfir allra nýjustu og nákvæmustu upplýsingum. Meginreglurnar þrjár eru einföldun, staðlar og tölvuvæðing. Oracle er virkt í fjölmörgum atvinnugreinum, frá smásölu til flugmála, frá bíliðnaði til opinberrar stjórnsýslu. Meðal þeirra fyrirtækja sem voru tekin yfir á síðustu árum eru Siebel og PeopleSoft þar með talið JD Edwards. Með því að sameinast þessum keppinautum hefur Oracle tekist að styrkja stöðu sína á markaðinum fyrir samþættan fyrirtækjahugbúnað.
Flaggskip Oracle er Oracle Viðskiptalausnir. Þessi flokkur samþættra kerfa gerir Oracle kleift að takast á við því sem næst öll hugsanleg viðskiptaferli og að gera öll fyrirtæki algjörlega sjálfvirk.
Ráðgjafar
Hjá Viðskiptalausnum Skýrr starfar stór hópur sérfræðinga með mikla og fjölbreytta reynslu og þekkingu sem leggur sig eftir nýjungum. Ráðgjafarnir hafa mikla reynslu og þekkingu á möguleikum Oracle viðskiptalausna. Flestir ráðgjafanna eru háskólamenntaðir sérfræðingar í flóknum viðskiptaferlum fyrirtækja og stofnana og hafa víðtæka starfsreynslu sem slíkir. Mikil áhersla er lögð á að ráðgjafar fylgist vel með öllum nýjungum, bæði í Oracle viðskiptalausnum sem og á sínu faglega sérsviði.
Í ráðgjafahópi Viðskiptalausna er m.a. að finna ráðgjafa með víðtæka þekkingu og reynslu í:
- Stjórnun og skipulagningu mannauðs
- Launavinnslu og rekstri launa- og starfsmannakerfa
- Greiningu, uppsetningu og rekstri mannauðskerfa
- Bókhaldi, greiningarvinnu og uppgjöri
- Greiningu, uppsetningu og rekstri fjárhagskerfa
- Vörustýringu og innkaupaferlum
- Innleiðingu, uppsetningu og rekstri verkbókhalds- og vörustýringarkerfa.
Kerfisfræðingar
Stór hópur kerfisfræðinga með víðtæka reynslu og þekkingu starfar hjá Viðskiptalausnum Skýrr. Þeir hafa sérþekkingu á uppbyggingu Oracle viðskiptalausna og mikla reynslu af því að aðlaga og bæta við kerfið ýmsum möguleikum til að mæta sérstökum þörfum viðskiptavina.
Nánari upplýsingar
skyrr@skyrr.isFrekari upplýsingar, ítarefni og greinar um Viðskiptalausnir Oracle veita ráðgjafar Skýrr í síma 569 5100.
Oracle Gold Partner
Skýrr er viðurkenndur samstarfsaðili Oracle,
Oracle Gold Partner
Námskeið
Skýrr-skólinn býður upp á fjölbreytt úrval námskeiða í Oracle viðskiptalausnum.
Viðskiptavinir geta valið á milli staðlaðra námskeiða og sérhannaðrar þjálfunar og lausna sem henta þörfum hvers og eins.
Vantar þig þjónustuheimsókn eða sérsniðið námskeið?
Hafðu samband í síma eða sendu tölvupóst á kennsla@skyrr.is
Fjárhagslausn Oracle samanstendur af fjölbreyttum kerfishlutum sem eru samþættir, en geta einnig staðið einir sér.
Kerfishlutar fjárhagskerfa
- Fjárhagur
- Eignakerfi
- Viðskiptaskuldir
- Viðskiptakröfur
- Afstemmingar
Öll almenn fjárhagsvinnsla
Hægt er að framkvæma alla almenna vinnslu í fjárhagslausn Oracle, s.s. almennar bókanir, bæði í einstökum færslubókum og runum, gengisleiðréttingar og áætlanagerð. Auðvelt er að skoða bókaðar færslur hvort sem er á T-lykla formi eða á færslulistaformi.
Sveigjanleiki
Einn helsti kostur fjárhagslausnarinnar er sveigjanleiki. Sem dæmi um sveigjanleika má nefna að hægt er að hafa allt að 30 víddir í bókhaldslyklinum ef óskað er og óendanlegan fjölda af áætlunum. Flokka má færslubækur í flokka og skilgreina og setja upp óendanlega mörg gagnasvæði (e. descriptive flexfield) til viðbótar þeim sem fyrir eru í gagnagrunninum.
Mörg fyrirtæki í sama gagnasafni
Hafa má óteljandi fjölda fyrirtæki í sama gagnasafni. Þessi fyrirtæki geta verið hvert með sína uppbyggingu á bókhaldslyklinum, hvert með sinn gjaldmiðilinn, hvert sitt dagatal og sína uppbyggingu á bókhaldstímabilum ef þörf krefur. Ef um móður- og dótturfyrirtæki er að ræða má flytja samtölur frá dótturfyrirtækjum upp í móðurfélag til að sjá samstæðuuppgjör. Einnig er hægt að sjá rekstraruppgjör hvers fyrirtækis fyrir sig.
Öflug áætlanagerð
Oracle bókhaldskerfið leyfir öfluga „top-down“-, „bottom-up“- og „middle-out“-áætlanagerðir. Hægt er að hafa eins margar útgáfur af áætlunum og þörf þykir og mögulegt að verja áætlanir með aðgangsstýringu. Sækja má áætlanir í Microsoft Excel-skjöl eða Oracle Financial Analyzer og nota formúlur til að búa til áætlanatölur. Einnig má nota reglur sem notandi skilgreinir sjálfur til að búa til áætlanir.
Fjölmargir fyrirspurnarmöguleikar
Oracle viðskiptalausnir bjóða upp á fjölmarga möguleika til fyrirspurna og greiningar. Með Oracle fjárhagslausninni er hægt að nota fyrirspurnatól til að draga saman samtölur eða kafa niður í færslur. Einnig má framkvæma fyrirspurnir í öðrum hlutum viðskiptalausnarinnar svo sem Viðskiptakröfum, Viðskiptaskuldum og Verkbókhaldi út frá færslum í Fjárhag.
Útreikningar milli gjaldmiðla
Möguleiki er á því að prenta út færslulista í öðrum gjaldmiðli en færslurnar eru bókaðar í. Forsenda þess er að gengisskráning sé rétt til að útreikningur á milli gjaldmiðla sé réttur með réttum hætti. Hægt er að skrá færslur í mörgum gjaldmiðlum og reikna sjálfvirkt út gengismun.
Dreifð starfsemi
Oracle viðskiptalausnir eru hannaðar fyirr fyrirtæki með dreifða starfsemi í huga. Það gefur fyrirtækjum möguleika á að hasla sér völl á nýjum sviðum eða á nýjum landsvæðum án þess að þurfa að fjárfesta í nýjum upplýsingahugbúnaði. Hægt er að að nota eina uppsetningu af viðskiptalausnum Oracle fyrir stórar samstæður með rekstur um allt land eða í mörgum löndum. Lausnin býr yfir eiginleikum sem henta öllum gerðum fyrirtækja, á hvaða vettvangi sem þau kunna að starfa.
Öll viðskiptalausnin – eða einstakar einingar
Viðskiptalausn Oracle tekur á öllum þáttum fyrirtækjarekstrar, allt frá aðföngum til sölu og markaðssetningar afurðar. Fyrirtæki geta innleitt lausnina í heild eða eingöngu staka hluta hennar, eins og fjárhagslausnina.
Öll gögn í einn gagnagrunn
Viðskiptalausn Oracle er fullkomlega samþætt og eru gagnagrunnur og úrvinnslutól gagna hluti af heildarlausninni. Gögn úr öllum deildum safnast í einn gagnagrunn og sé gögnum breytt á einum stað breytast þau alls staðar.
Betri forsendur ákvarðanatöku
Öll úrvinnsla gagna og framsetning upplýsinga, hvort sem er fyrir fyrirtækið í heild eða hluta þess, er markviss og einföld í framkvæmd. Þannig skapast betri forsendur fyrir ákvarðanatöku innan fyrirtækja.
Íslenskt viðmót
Viðskiptalausn Oracle og þar með fjárhagslausnin er aðlöguð íslenskum aðstæðum. Allar skjámyndir kerfisins eru til að mynda þýddar yfir á íslensku. Einnig er lausnin tengd við þjóðskrá og sækir þangað ýmsar upplýsingar sem sparar vinnu við innslátt og viðhald upplýsinga
Oracle starfsmannakerfið er hluti af mannauðskerfi Oracle
Mannauðskerfi Oracle samanstendur af fjölbreyttum einingum sem eru samþættar, en geta einnig staðið einar sér. Kerfið er eitt hið öflugasta á markaði og ræður við mjög hátt flækjustig í vinnslu.Stjórnun starfsmannamála
Virk stjórnun á mannauði fyrirtækja bætir til muna innviði fyrirtækja og er leið að bættri samkeppnishæfni. Oracle starfsmannakerfið er afar framþróuð mannauðslausn sem gefur fyrirtækjum kost á fjölda leiða til að einfalda viðskiptaferli, bæta innviði, stjórnun og samskipti við starfsmenn með því að nýta betur þær upplýsingar sem fyrir liggja. Kerfið getur þannig gjörbreytt stjórnun starfsmannamála og átt þátt í að stýra starfsþróun starfsmanna í takti við stefnu fyrirtækisins á hverjum tíma.
Kostir Netsins nýttir til fulls
Mannauðsstjórnunarlausn Oracle (Oracle HR) byggist á sjálfsafgreiðslukerfi í gegnum Netið. Það gerbreytir framkvæmdastjórnun og hvernig upplýsingum tengdum mannauði er dreift innan fyrirtækja. Oracle HR gefur fyrirtækjum kost á fjölda leiða til að einfalda viðskiptaferli, bæta innviðina og samskipti við starfsmenn með því að nýta betur þær upplýsingar sem fyrir liggja.
Fullkomlega samhæft kerfi - einingum bætt við eftir þörfum
Kerfishlutar Oracle HR spila saman og mynda eitt heildstætt mannauðskerfi sem heldur utan um allar upplýsingar um starfsmenn fyrirtækisins. Miklir möguleikar skapast við að hafa allar upplýsingar í einu kerfi þar sem hægt er að tengja mismunandi starfsmannaupplýsingar saman. Hins vegar er einnig mögulegt að innleiða aðeins ákveðna kerfishluta (t.d. aðeins starfsmannakerfi eða fræðslukerfi) og bæta svo við eftir þörfum.
Fjölbreyttir möguleikar
Það eru margir mismunandi möguleikar í boði til að skrá upplýsingar inn í Oracle-starfsmannakerfið, svo sem algengar persónuupplýsingar, upplýsingar um menntun, endurmenntun, starfsferil, starfsþróun, starf, starfsheiti, kröfur til starfs, deildir, skipurit, laun og margt fleira. Allar upplýsingar sem tengjast starfsmanni í kerfinu eru síðan tengdar saman í eina heild. Með greiningartæki lausnarinnar er síðan mjög auðvelt að taka út, greina og bera saman mismunandi starfsmannaupplýsingar innan fyrirtækisins.
Saga starfsmanna er skráð í kerfið og haldið er utan um sögu breytinga í kerfinu. Það er ávallt tiltækt yfirlit yfir starfssögu starfsmanns í kerfinu og einnig er hægt er að stilla kerfið fram og aftur í tíma og skrá inn og skoða breytingar sem hafa verið gerðar á mismunandi dagsetningum.
Sjálfsafgreiðsla í gegnum Netið - sparnaður og aukin ánægja
Í gegnum Netið hafa starfsmenn aðgang að og geta uppfært persónulegar upplýsingar, sótt um námskeið, fylgst með skráðri starfsþróun sinni og skoðað launaseðla og launayfirlit. Þetta sparar vinnu og eykur nákvæmni við viðhald upplýsinga hjá starfsmannadeildum fyrirtækja/stofnana og getur virkað mjög hvetjandi á starfsmenn þar sem þeir geta til dæmis fylgst með starfsþróun sinni í kerfinu og komið með tillögur um breytingar. Verkefnastjórar eða millistjórnendur geta ráðið starfsmenn og/eða fengið yfirsýn yfir hvaða núverandi starfsmenn koma til greina í ákveðin verkefni. Öll svið fyrirtækisins verða sjálfbjarga þegar kemur að mannauði sem leiðir til þess að þeir starfsmenn sem sinna starfsmannamálum fá meiri tíma til að sinna stefnumótun og öðrum mikilvægum málum.
Öll launamál einfaldast
Fullkomið launakerfi er hluti af Oracle HR, launakerfið er algerlega samhæft öðrum einingum Oracle viðskiptalausna og hefur verið aðlagað íslenskum aðstæðum. Launakerfið ræður við hátt flækjustig og er nú notað við launagreiðslur um 50.000 launþega á Íslandi.
Samhæfðar upplýsingar
Með því að hafa í einum gagnagrunni allar upplýsingar um starfsmenn fyrirtækisins er hægt að tengja saman ólík gögn sem saman mynda verðmætar upplýsingar um mannauð fyrirtækisins á hverjum tíma. Þannig er til dæmis hægt að tengja upplýsingar um kröfur til starfa við upplýsingar um laun, hæfni, menntun og starfsþróun viðkomandi starfsmanna. Slíkar upplýsingar geta t.d. verið grundvöllur ákvarðana um þróun starfa og starfsmanna til framtíðar.
Í sjálfsafgreiðslu kerfisins er hægt að skilgreina ákveðin ferli umsókna á til dæmis ýmsa viðburði eða umsókna um laus störf og það sparar vinnu við utanumhald og skráningu og tryggir nákvæmni og eftirlit.
Öflugar aðgangsstýringar tryggja trúnaðarupplýsingar
Stýrður aðgangur er að öllum upplýsingum í kerfinu þar sem hægt er að skilgreina bæði hvaða starfsmenn viðkomandi aðili á að hafa aðgang að í kerfinu og einnig hverskonar upplýsingar og hvers konar skjámyndir viðkomandi geti séð í kerfinu. Almennir starfsmenn hafa yfirleitt einungis aðgang að eigin upplýsingum í gegnum sjálfsafgreiðslu kerfisins.
Íslenskt viðmót
Oracle starfsmannakerfið er aðlagað íslenskum aðstæðum. Allar skjámyndir kerfisins eru til að mynda þýddar yfir á íslensku. Einnig er kerfið tengt við þjóðskrá og sækir þangað ýmsar upplýsingar sem sparar vinnu við innslátt og viðhald upplýsinga í kerfinu.
Aukinn sparnaður - meiri nákvæmni
Oracle HR getur sparað fyrirtækjum/stofnunum verulegar fjárhæðir með betri nýtingu mannauðs og auknum möguleikum og nákvæmni í upplýsingum um starfsmenn fyrirtækisins á hverjum tíma. Dæmi um þetta eru eftirfarandi:
- Í sjálfsafgreiðslu kerfisins hafa starfsmenn aðgang að og geta breytt skilgreindum upplýsingum um sjálfa sig. Stjórnendur hafa aðgang að og geta breytt upplýsingum um sína starfsmenn. Þetta sparar vinnu við viðhald upplýsinga hjá starfsmannadeildum fyrirtækja/stofnana.
- Ábyrgð á viðhaldi upplýsinga færist nær þeim aðilum sem þurfa á þessum upplýsingum að halda. Þetta tryggir betur nákvæmni og stöðugt viðhald þessara upplýsinga.
- Öll svið fyrirtækisins verða sjálfbjarga um skráningu og nálgun á upplýsingum um mannauð. Öll svið fyrirtækisins geta þannig ávallt haft aðgang að þeim upplýsingum um starfsmenn sem skipta máli á hverjum tíma. Þetta auðveldar til muna vinnu starfsmannahalds fyrirtækja/stofnanna.
- Með því að hafa í einum gagnagrunni allar upplýsingar um starfsmenn fyrirtækisins er hægt að tengja saman ólík gögn sem saman mynda verðmætar upplýsingar um mannauð fyrirtækisins á hverjum tíma. Þannig er t.d. hægt að tengja upplýsingar um kröfur til starfa við upplýsingar um laun, hæfni, menntun og starfsþróun viðkomandi starfsmanna á hverjum tíma. Slíkar upplýsingar geta t.d. verið grundvöllur ákvarðana um þróun starfa og starfsmanna til framtíðar.
- Í sjálfsafgreiðslu kerfisins er hægt að skilgreina ákveðin ferli umsókna á t.d. ýmsa viðburði eða umsókna um laus störf og það sparar vinnu við utanumhald og skráningu og tryggir nákvæmni og eftirlit. Sem dæmi um þetta má nefna að í fræðslukerfinu geta bæði stjórnendur og starfsmenn sótt um að fara á námskeið eða aðra fræðsluviðburði sem skilgreindir eru í kerfinu. Skilgreind eru ákveðin samþykktarferli fyrir slíkar umsóknir, t.d. þannig að stjórnendur verði að samþykkja slíkar umsóknir starfsmanna sinna. Kerfið heldur síðan á einfaldan hátt utan um allar umsóknir, biðlista, laus pláss og fleira og sendir viðkomandi aðilum tilkynningar um stöðuna á hverjum tíma. Þetta getur sparar t.d. starfsmannahaldi og fræðslustjórnum fyrirtækja/stofnana mikið starf við utanumhald og skráningu á upplýsingum.
Umfangsmikil og sveigjanleg lausn
Framleiðslulausnir Oracle taka mið af mismunandi þörfum framleiðslufyrirtækja og bjóða nauðsynlegan sveigjanleika þannig að fyrirtæki geta hver með sínum hætti hagnýtt lausnina. Með lausninni fæst nauðsynleg tenging milli bakvinnslukerfa og framenda. Oracle er í fararbroddi þegar kemur að samhæfingu framenda- og bakendalausna og lausnum sem ná yfir allt fyrirtækið; allt frá pöntun til afhendingar.
Betri grundvöllur fyrir ákvarðanatöku
Sérstök greiningartól sem eru hluti af framleiðslulausnum Oracle breyta því hvernig stjórnendur geta nálgast upplýsingar um framgang framleiðslunnar. Stjórnendur geta nýtt sér kosti Netsins og sérsniðna netgátt (Portal) þar sem viðeigandi upplýsingar birtast þeim. Gögnum úr framleiðsluferlinu er umbreytt í gagnlegar upplýsingar fyrir stjórnendur og þeim verður kleift að skilgreina, hafa umsjón með og greina frammistöðu fyrirtækisins. Skapast þar með betri grundvöllur fyrir ákvarðanatöku og stöðugar umbætur á framleiðsluferlum.
Bætt flæði upplýsinga, efnis og fjármagns
Framleiðslulausnir Oracle búa yfir öllum þeim tólum sem þarf til að flæði upplýsinga, efnis og fjármagns sé eins og best verður á kosið um alla aðfangakeðjuna. Með því að nýta kosti Netsins er hægt að auka allan veltuhraða. Jafnt starfsmenn sem samstarfsaðilar og birgjar geta í gegnum Netið nálgast upplýsingar hvenær og hvar sem er. Með þessu er komið í veg fyrir óþarfa tafir sökum þess að ekki fæst aðgangur að réttum upplýsingum.
Einfalt að skrá og viðhalda áætlunum
Það er mjög einfalt að útbúa áætlanir með kerfinu, bæði er hægt að útbúa þær frá grunni eða nota gögn úr öðrum kerfishlutum til viðmiðunar. Viðhald áætlana er einnig mjög einfalt, hægt er að breyta stökum upphæðum eða nota reiknireglur til að gera breytingar á hluta eða heildaráætluninni. Með minnisatriðum er hægt að merkja ástæðuna fyrir breytingum inn í áætlunina. Minnisatriði er hægt að hengja við ákveðinn lið í áætluninni, bæði handvirkt og sjálfkrafa ef reikniregla er notuð.
Kostnað við einstök störf eða stöðugildi er hægt að áætla með því að byggja á upplýsingum úr starfsmannakerfi Oracle. Hægt er að flytja áætlanir yfir í töflureikni, vinna við þær þar og flytja þær síðan aftur inn í áætlanakerfið.
Sveigjanleiki í uppbyggingu áætlana
Ef gerðar eru skipulagsbreytingar eða breytingar á bókhaldslykli fyrirtækis er einfalt að taka tillit til þess við áætlanagerð. Innbyggðir valkostir gefa möguleika á að nota aðrar forsendur en árið áður þegar uppbygging áætlunar er skilgreind.
Nákvæm upplýsingagjöf
Áætlanir er hægt að skoða á ýmsa vegu. Eitt af því sem Oracle Viðskiptalausnir bjóða er að umreikna fjárhagsgögn í þá mynt sem hentar hverju sinni. Fjöldi skýrslna fylgir með kerfinu, en einnig er hægt að útbúa sértækar skýrslur með Discoverer skýrslugerðartólinu. Í vefviðmóti eru margbreytilegir borunarmöguleikar þar sem er hægt að kafa úr summutölum niður í einstakar færslur t.d. úr áætlun fyrir fyrirtækið í heild sinni niður í áætlun fyrir einstakar deildir.
Endurbætt notendaskil
Notendaskilin í Oracle eru samræmd t.d. er hnappa- og valmyndastika kerfisins eins í öllum kerfishlutum. Þegar notendur hafa lært undirstöðuatriði í einum kerfishluta geta þeir yfirfært þá þekkingu yfir á aðra hluta kerfisins. Kerfið hefur verið aðlagað að íslenskum aðstæðum auk þess sem allar skjámyndir kerfisins og handbækur eru á íslensku.
Skýrr býður upp á góða lausn á sviði verkefnastýringar. Oracle verkbókhald er sveigjanleg lausn, þar sem fyrirtæki og stofnanir geta stýrt sjálf hvernig uppbyggingu niður á verk og verkþætti er háttað. Verkbókhald getur myndað kostnaðarútreikninga út frá töxtum og aðföngum. Einnig getur kerfið myndað tekjuútreikninga frá kostnaði eða ákveðnum vörðum. Oracle verkbókhald getur skrifað uppkast reikninga sem síðan eru innheimtir eða prentaðir út.
Utanumhald um kostnað
Með skráningu í verkbókhaldskerfið myndast gagnagrunnur. Grunnurinn er gott tæki til að sýna, rekja og bera saman kostnað og með betri vitneskju um þann kostnað sem verður til er auðveldara að taka réttar ákvarðanir. Með notkun kerfisins er einnig auðvelt að greina falinn kostnað sem annars væri erfitt að sjá.
Áætlanagerð
Í Oracle verkbókhaldi er einfalt að búa til áætlanir á verk, hvort sem er niður á tímabil, dagsetningar, tíma eða aðföng. Kerfið heldur utan um allar útgáfur áætlana með nákvæmri útgáfustýringu.
Góð skýrslugerð
Oracle verkbókhaldskerfið inniheldur nútímalega skýrslugerð. Með henni er hægt að ná í upplýsingar og sjá stöðu verka hvenær sem er.
Einföld skráning
Oracle verkbókhald gerir notendum kleift að skrá í hvað þeir verja vinnutíma sínum á einfaldan og fljótlegan hátt. Öll skráning aðfanga á verk auðlærð.
Hagræðing
Með notkun á Oracle verkbókhaldskerfinu mun upplýsingagjöf batna og getan til góðra ákvarðanatöku margfaldast. Skýrari yfirsýn fæst yfir þau verkefni sem unnið er í hverju sinni og falinn kostnaður kemur betur í ljós. Betri yfirsýn leiðir af sér meiri hægræðingu.

