Samhæfing gagna

Enterprise Information Management (EIM)

Góð og samhæfð gögn, undirstaða árangurs í viðskiptagreind

Samhæfing gagna er grundvallarforsenda þess að vel takist til þegar aðferðarfræði viðskiptagreindar er viðtekin í fyrirtækjum. Það er bæði gamall sannleikur og nýr að þær upplýsingar sem út úr kerfum koma, eru hvorki betri né verri en þau sem sett voru inn í kerfið. Því er mikilvægt að hafa þetta í huga allt frá byrjun.

Margvísleg og dreifð gögn

Þarfir fyrirtækja eru margsvíslegar þegar kemur að nýtingu upplýsinga. Í flestum tilfellum eru þó gögn dreifð og notast er við fleiri en einn gagnagrunn. Í EIM flórunni býður Business Objects verkfæri sem eru óháð gagnagrunnum og geta unnið með nánast hvaða gögn sem er, s.s. Excel skjöl, flatar textaskrár auk hinna ýmsu gagngrunnstegunda. Þá eru einnig fáanlegar kerfisviðbætur sem aðstoða við uppbyggingu flutningsferla á milli kerfa og jafnvel tilbúnir gagnamarkaðir fyrir ERP kerfi stærri framleiðenda s.s. Oracle og SAP.

Nýjungar í Enterprise Information Management flórunni

Business Objects hefur sent frá sér margar nýjungar í EIM flórunni:

  • Data Integrator XI - Ný útgáfa, 11.6, af DI 
  • Data Federator - Nýtt og öflugt verkfæri frá BO í EII deildinni.
  • Data Cleansing - Verkfæri til hreinsunar á gögnum
  • Metadata Manager - Auðveldar alla umsýslu lýsigagna (metadata) og dregur þannig úr kostnaði fyrirtækja.
  • Composer - Einfaldar verkefnastjórn og hjálpar til við hönnun flutningsferla (e. ETL jobs) í vöruhúsaverkefnum.
  • Rapid Marts, tilbúnir gagnamarkaðir ofan á ýmis kerfi, s.s. SAP og Oracle