Námskeið

Skýrr er viðurkendur samstarfsaðili með kennsluréttindi eða  "Authorized Education Partner" hjá Business Objects. Einungis þeir aðilar sem standast strangar kröfur Business Objects um þjálfun, aðstöðu og víðtæka þekkingu hafa öðlast þennan gæðastimpil.

Viðskiptagreind Skýrr býður upp á námskeið við allra hæfi. Í boði eru námskeið þar sem ýmist er notast við innlenda eða erlenda fyrirlesara. Vefnámskeið Business Objects er einnig góð leið til að viðhalda þekkingu eða skapa grunn undir víðtækari námskeið hjá Skýrr.

Skýrr býður upp á fyrsta flokks kennsluaðstöðu þar sem mikið er lagt upp úr vandaðri kennslu. Að loknu Business Objects námskeiði er gefið út viðurkenningarskjal á nafn þátttakanda.
Boðið er upp á nokkrar tegundir af námskeiðum sem henta við mismunandi tækifæri:

 Gerð
  Kostir Hentar
Vefnámskeið
Vefnámskeið hafa eins árs gildistíma. Má taka hvenær sem er og endurtaka að vild

Hentar þeim sem vilja hafa sveigjanleika við námskeiðahald
Skýrr námskeið
Námskeið með sérhæfðum kennara í  vandaðri kennslu-aðstöðu Skýrr
Hentar þeim sem leita að hnitmiðuðum námskeiðum og geta verið frá vinnu í allt að nokkra daga

Sérsniðin námskeið
Sérsniðin námskeið fyrir fyrirtæki þar sem innihald er sniðið að þörfum þess Hentar smærri hópum og í sértækum verkefnum