Microsoft BI
10 kostir Microsoft BI
- Árangursrík og skilvirk upplýsingamiðlun
- Betri yfirsýn og markvissari ákvarðanataka
- Auðveldari samvinna og gagnamiðlun
- Fjölbreytt tól til greiningar á rauntímaupplýsingum
- Aukin samhæfing markmiða og leiða
- Aflið í Microsoft Office nýtt til fullnustu
- Viðskiptagreindartól fyrir allt starfsfólk
- Kunnulegt umhverfi og viðmót sem allir þekkja
- Framþróuð mælaborð stjórnenda og samþætt árangursmat
- Alvöru viðskiptagreind á hagkvæmu verði
Heildstætt umhverfi
Microsoft BI er samþætt heildarlausn hugbúnaðarvöndulsins Microsoft Office og gagnagrunnsmiðlarans Microsoft SQL Server. Um er að ræða fullvaxið viðskiptagreindarumhverfi, sem er sérhannað fyrir söfnun, samhæfingu, og úrvinnslu gagna, ásamt miðlun þeirra í formi verðmætra upplýsinga. Microsoft BI er ætlað að styðja alla fleti ákvarðanatöku fólks í atvinnulífinu
Fjölbreytt greining upplýsinga
Microsoft BI veitir fjölmarga kosti til að fylgjast með og greina upplýsingar, sem til dæmis lúta að fjárhag, rekstri, viðskiptatengslum og mannauði. Upplýsingar þessar eru uppfærðar, annað hvort í rauntíma eða á fyrirfram ákveðnum tímapunkti og síðan ýtt til notenda með þeim hætti sem hentar í hverju tilviki.
Góð arðsemi fjárfestingar
Microsoft BI er sveigjanleg og öflug lausn, sem byggir á samþættingu Microsoft-lausna, sem eru fyrir hendi víðast hvar í atvinnulífinu. Innleiðing Microsoft BI felur því í sér góða arðsemi fjárfestingar, þar sem kerfið nýtir eldri fjárfestingar í hugbúnaði og undirlyggjandi vélbúnaði
Takmarkaður þjálfunarkostnaður
þar sem viðmót Microsoft BI er kunnuglegt flestum notendum er mögulegt að halda öllum þjálfunarkostnaði og innleiðingartíma í lágmarki. Microsoft BI tryggir að rétt fólk hafi nákvæmar upplýsingar tímanlega til reiðu, á réttu sniði, framsettar í þægilegu viðmóti, sem allir þekkja.
Samþætting veitir yfirsýn
Microsoft BI spannar allt frá samhæfingu gagna (m.a. vöruhús gagna) að ákveðnum mælaborðum til áætlanagerðar og tengdrar ákvarðanartöku fyrir stjórnendur. Samþætting getur falið í sér mikið hagræði og tímasparnað. Slík samþætting veitir jafnframt góða yfirsýn yfir mikilvæga þætti í rekstri og starfsemi.

