Oracle BI

Ertu að leita að viðskiptagreindarkerfi?
Viltu fá upplýsingar um eitt af því besta á markaðnum í dag?
Skoðaðu hvað Gartner segir um Oracle BI.

Betri ákvarðanataka

Í rekstri nútímafyrirtækja þurfa stjórnendur að hafa til taks hágæða upplýsingar og traustan grundvöll til ákvarðanatöku til að þeim sé kleift að ná viðunandi árangri. Hvernig getum við safnað, stjórnað og notað upplýsingar til þess að öðlast meiri þekkingu? Hvernig verðum við okkur úti um þær upplýsingar sem eru grundvöllur ákvarðana til að stýra fyrirtækinu í átt að vexti og áframhaldandi velgengni? Og hvernig getum við notað þessa þekkingu til að styrkja fyrirtækið og markaðsstöðu þess, starfsmennina og þar með tekjuöflunina? Hérna koma hugbúnaðarlausnir á sviði Viðskiptagreindar til sögunnar.

Hugtakið viðskiptagreind (Business Intelligence) felur í sér:

  • Vel uppbyggða og samþætta söfnun á upplýsingum
  • Greiningu, skýrslugerð og miðlun þekkingar um allt fyrirtækið
  • Ákvarðanagrundvöll og stuðning við ákvarðanir sem leiða til athafna
  • Oracle e-business Suite skilar daglegri viðskiptagreind

    Viðskiptagreindarlausir Oracle e-business suite uppfylla upplýsingaþarfir fyrirtækja með beinum aðgangi notenda á Netinu að þeim upplýsingum sem þeir þurfa. Mörg hundruð fyrirfram skilgreindar skýrslur og greiningarmöguleikar fyrir fjárhag, mannauð, innkaup, aðfangastýringu, verkefni ofl. eru hluti af þeim viðskiptagreindarlausnum sem unnt er að fá fyrir kerfishluta viðskiptalausna Oracle.  Með Oracle e-business Suite og samhæfðum viðskiptagreindarlausnum er ekki þörf á sérstöku vöruhúsi gagna (Data Warehouse) heldur nýta lausnirnar möguleika Oracle gagnagrunnsins til fulls og býður þannig beinan aðgang í rauntíma upplýsingar.  

    Skilgreindir lykilmælikvarðar, viðvaranir ef árangur er utan skilgreindra marka og möguleikar á að bora niður frá millisummum niður í einstakar færslur er meðal þeirra möguleika sem viðskiptagreind Oracle býður uppá.  Upplýsingar eru flokkaðar og skilgreindar eftir ábyrgðarsviðum stjórnenda og starfsmanna og aðgengilegar í gegnum einfalt vefviðmót sem notendur geta aðlagað að sínum þörfum. 

    Balanced Scorecard - Samhæft árangursmant

    Stjórnunar- og mælikerfið, Balanced Scorecard eða Samhæft árangursmat, hjálpar fyrirtækjum að tengja afturvirkar stærðir, sem fást beint úr öðrum kerfishlutum Oracle viðskiptalausna eða úr vöruhúsi gagna, við framtíðarstefnu og -hlutverk þeirra og meta þannig eigin frammistöðu út frá heildrænu sjónarhorni. Hugbúnaðarlausnin er hönnuð í nánu samstarfi við höfunda hugmyndafræðinnar á bak við Samhæft árangursmat. 

    Fjölbreytt úrval lausna

    Auk viðskiptagreindarlausna innan Oracle E-business Suite býður Oracle upp á fjölbreytt úrval annara viðskiptagreindarlausna og þróunartóla, en undir þann flokk falla til dæmis vöruhús gagna, Discoverer og ýmis tæki til greiningar á afkomu, viðskiptavinum og mörkuðum. Auk þess búa Oracle9i gagnagrunnurinn og -viðfangamiðlarinn, yfir eiginleikum viðskiptagreindar og vöruhúsa gagna.

    Nánari upplýsingar

    skyrr@skyrr.is

    Allar frekari upplýsingar, ítarefni og greinar um Oracle BI veita ráðgjafar Skýrr í síma 569 5100.

    Oracle Gold Partner

    Skýrr er viðurkenndur samstarfsaðili Oracle,
    Oracle Gold Partner