S5 Skjöl og mál
S5 Skjöl og mál er notendavænt skjala- og málakerfi, sem hentar
fyrirtækjum sem leggja áherslu á samræmd vinnubrögð við skjalastjórnun,
auðvelt aðgengi að skjölum og gott skipulag á rekstri mála og erinda.

S5 Skjöl og mál er sveigjanlegt kerfi þar sem auðvelt er að skilgreina mismunandi mála- og skjalategundir og útbúa margvíslegar sýnir á gögn. Hægt er að tengja skjöl tilteknum málum og auk þess skrá og geyma skjöl á skipulegan hátt án tengingar við mál. Þannig getur kerfið nýst fyrst og fremst sem skjalakerfi, sem málakerfi eða sem skjala- og málakerfi eftir því hvar áherslurnar liggja.
S5 Skjöl og mál er veflausn og því aðgengilegt öllum skilgreindum notendum sem aðgang hafa að veraldarvefnum. Viðmót kerfisins er notendavænt og auðvelt er að læra á það.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um S5 Skjöl og mál veita ráðgjafar Skýrr. Sé þess óskað býður Skýrr upp á ítarlega kynningu á kerfinu og hvernig það getur nýst fyrirtækjum og stofnunum við að halda skipulega utan um ábendingar og kvartanir og þannig auka gæði vöru og þjónustu.
Í S5 Skjölum og málum er meðal annars hægt að:
- Skilgreina verkflæði og skráningaratriði fyrir sérhverja mála- og skjalategund
- Skilgreina skjalalykil og málalykil og tengja skjöl og mál viðkomandi lykli
- Stilla sjálfvirkar áminningar og þannig koma í veg fyrir að mál tefjist að óþörfu eða dagi uppi
- Útbúa aðgangsstýrðar möppur fyrir geymslu og útgáfustýringu skjala
- Stýra aðgangi niður á einstök skjöl og mál, svo sem ef um er að ræða trúnaðarmál
- Tengja skjöl við mál, en skjöl geta verið hvers kyns tölvutæk skjöl, svo sem ritvinnsluskjöl, ljósmyndir, hljóð, hreyfimyndir og skönnuð skjöl
- Útbúa eyðublöð, bréf og þess háttar sem fyllt eru sjálfkrafa út með upplýsingum úr kerfinu auk innsláttar
- Útbúa MSOffice skjalasniðmát (s.s. Word, Excel eða Power Point) og tengja sniðmátin mála- eða skjalategundum eftir því sem við á
- Halda utan um breytingasögu skjals og rekja breytingar sem gerðar eru á skjali
- Halda utan um inn- og útsendan tölvupóst tengdan málum og skjölum
- Stofna skjöl og mál í kerfinu beint út frá ritvinnsluskjali eða með því að senda tölvupóst á kerfið
- Leita eftir öllum skráningaratriðum í málum og skjölum og framkvæma orðaleit í fylgiskjölum
- Útbúa margvíslega lista og sýnir á gögn eftir völdum gagnaatriðum og greina ýmsar tölfræðiupplýsingar um mál og skjöl
- Vinna með rafrænar undirskriftir
Ávinningur af því að nota S5 Skjöl og mál er margvíslegur. Má þar m.a. nefna:
- l Skjöl eru ávallt tiltæk og aðgengileg þegar á þarf að halda
- Betri yfirsýn yfir skjöl og mál
- Minni hætta á að skjöl og þar með mikilvægar upplýsingar glatist
- Samræmd vinnubrögð eru í útgáfustýringu og meðferð skjala
- Meira öryggi og færri mistök í afgreiðslu mála og styttri afgreiðslutími
- Auðveldara er að safna saman og halda utan um þekkingu og miðla til réttra aðila
- Betri stjórnun og nýting á þekkingu
- Betri þjónusta og aukið traust
- Aukin framleiðni og minni kostnaður
Innleiðing og ráðgjöf
Hjá Skýrr starfa ráðgjafar með margra ára reynslu og víðtæka þekkingu á gæðamálum. Þeir veita aðstoð við innleiðingu kerfisins í samræmi við óskir og þarfir einstakra viðskiptavina.S5 hugbúnaðarkerfið
S5 hugbúnaðarkerfið er hugbúnaður hannaður til að búa til sérsniðnar veflausnir. S5 er byggður upp á stökum einingum, sem raða má saman og búa þannig til sérsniðna hugbúnaðarlausn án mikils tilkostnaðar. Með því móti er hægt að spara mikla forritunarvinnu, sem felst í því að skrifa tölvukerfi frá grunni. Á skömmum tíma er til dæmis hægt að setja upp skjalastjórnunarkerfi, verkbeiðnakerfi, eða málakerfi, sem er fullkomlega aðlagað að þörfum viðskiptavinarins.Í stað þess að kaupa S5 lausn getur viðskiptavinur leigt aðgang að lausninni, sem þá er hýst hjá Skýrr eða öðrum hýsingaraðila.
Frekari upplýsingar um S5 Hugbúnaðarkerfið má finna hér

