S5 Ábendingar

S5 Ábendingar er lausn sem styður allt ferlið frá því að ábending eða kvörtun er skráð þar til úrbótum vegna hennar er lokið á farsælan hátt. S5 Ábendingar nýtist fyrirtækjum sem vilja tryggja að ávallt sé gripið til viðeigandi ráðstafana vegna ábendinga og kvartana sem þeim berast og að sífellt sé unnið að endurbótum sem taldar eru skila fyrirtækinu ávinningi.
S5 Ábendingar er veflausn og því aðgengilegt öllum skilgreindum notendum sem aðgang hafa að veraldarvefnum. Viðmót kerfisins er notendavænt og auðvelt er að læra á það. Kerfið uppfyllir kröfur gæðastaðalsins ÍST ISO/IEC 9001.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um S5 Ábendingar veita markaðsstjórar og ráðgjafar Skýrr. Sé þess óskað býður Skýrr upp á ítarlega kynningu á kerfinu og hvernig það getur nýst fyrirtækjum og stofnunum við að halda skipulega utan um ábendingar og kvartanir og þannig auka gæði vöru og þjónustu.
Í S5 Ábendingum er meðal annars hægt að:
- Skrá og halda skipulega utan um ábendingar og kvartanir frá viðskiptavinum og starfsmönnum
- Úthluta nauðsynlegum úrbótum vegna ábendinga og kvartana til réttra úrlausnaraðila og fylgja úrbótum eftir
- Stilla sjálfvirkar áminningar til að fyrirbyggja að afgreiðsla ábendinga og kvartana tefjist að óþörfu eða dagi uppi
- Skilgreina notendahópa og notendaaðgang
- Stýra aðgangi að einstökum ábendingum og kvörtunum, s.s. ef um er að ræða trúnaðarmál
- Halda utan um hvers kyns tölvutæk skjöl, s.s. ritvinnsluskjöl, ljósmyndir, hljóð, hreyfimyndir o.s.frv.
- Skrá og halda utan um samskipti við viðskiptavini. Til dæmis er hægt að skrá munnleg samskipti í færsluskrá og halda utan um öll inn- og útsend tölvupóstsskeyti vegna ábendingar eða kvörtunar
- Taka út og skoða margvíslega lista yfir ábendingar og kvartanir eftir málaflokkum, deildum, ábyrgðarmönnum, viðskiptavinum, úrlausnaraðilum o.s.frv.
- Útbúa og greina ýmsar tölfræðiupplýsingar um ábendingar og kvartanir, s.s. tíðni, dreifingu, afgreiðslutíma o.fl.
Ávinningur þess að nota S5 Ábendingar er meðal annars:
- Betri þjónusta og afurðir
- Ánægðari viðskiptavinir og starfsmenn
- Sívirkt gæðaeftirlit, aukið öryggi og virkara gæðakerfi
- Auðveldara verður að meta þarfir viðskiptavina og starfsmanna
- Auðveldara verður að koma nýjum hugmyndum á framfæri og fylgja þeim eftir
- Betra og skilvirkara skipulag á eftirfylgni úrbóta
- Styttri afgreiðslutími ábendinga og kvartana
- Auðvelt er að aðlaga og sníða kerfið að ábendinga- og kvartanaferli viðkomandi fyrirtækis
- Kerfið er einfalt í uppsetningu, sveigjanlegt og auðvelt í viðhaldi
- Kerfið er til bæði á íslensku og ensku
Innleiðing og ráðgjöf
Hjá Skýrr starfa ráðgjafar með margra ára reynslu og víðtæka þekkingu á gæðamálum. Þeir veita aðstoð við innleiðingu kerfisins í samræmi við óskir og þarfir einstakra viðskiptavina.
S5 hugbúnaðarkerfið
S5 hugbúnaðarkerfið er hugbúnaður hannaður til að búa til sérsniðnar veflausnir. S5 er byggður upp á stökum einingum, sem raða má saman og búa þannig til sérsniðna hugbúnaðarlausn án mikils tilkostnaðar. Með því móti er hægt að spara mikla forritunarvinnu, sem felst í því að skrifa tölvukerfi frá grunni. Á skömmum tíma er til dæmis hægt að setja upp skjalastjórnunarkerfi, verkbeiðnakerfi, eða málakerfi, sem er fullkomlega aðlagað að þörfum viðskiptavinarins.Í stað þess að kaupa S5 lausn getur viðskiptavinur leigt aðgang að lausninni, sem þá er hýst hjá Skýrr eða öðrum hýsingaraðila.
Frekari upplýsingar um S5 Hugbúnaðarkerfið má finna hér

