Scribe aðstoðar við að fullnýta þær kerfiseiningar sem þegar eru til staðar í fyrirtækjum og samnýta upplýsingar úr þeim yfir í CRM kerfi fyrirtækisins.
Hægt er að nota Microsoft Dynamics CRM sem aðalvinnuumhverfið og samnýta upplýsingar úr öðrum kerfum. Hvort sem um er að ræða einstaka eða endurtekna yfirfærslu gagna er Scribe ódýr og einföld lausn sem ekki krefst forritunar og sem fjöldi fyrirtækja notfæra sér.