Vinnustund

VinnuStund er vaktaáætlunar og viðverukerfi sérhannað af Skýrr. Kerfið hentar íslenskum aðstæðum einkar vel. Við hönnun kerfisins hefur verið kappkostað að taka mið af íslenskri vinnulöggjöf án þess að það bitni á nauðsynlegum sveigjanleika við skipulagningu vakta.

VinnuStund heldur utan um tíma- og fjarvistaskráningar starfsmanna ásamt því að vera öflugt tæki til að skipuleggja vinnutíma þeirra.

VinnuStund skiptist í viðverukerfið Stund og vaktakerfið Vinnu. Vinna og Stund eru algjörlega samtengdir kerfishlutar og vinna því saman sem eitt kerfi.
Grein um Vinnustund í Fréttablaðinu