Oracle gagnagrunnur

Oracle 10g gagnagrunnurinn er fyrsti gagnagrunnurinn sem er sérstaklega hannaður fyrir GRID notkun en einnig hefur mikið verið lagt í sjálfvirkni , öryggi og fleira.
Til eru mismunandi gerðir af Oracle 10g gagnagrunninum en allar innihalda þær sömu öflugu gagnagrunnsvélina og eru fullkomlega samhæfðar.

 

  • Oracle 10g Personal Edition er sérstaklega hannaður fyrir þróara og er fullkomlega samhæfður við Oracle Standard Edition og Oracle Enterprise Edition. Munurinn er að
    Oracle Personal Edition er einfölduð útgáfa en að sama skapi jafn öflugt umhverfi og hin.
  • Oracle 10g Database Lite er skilvirkt, öruggt umhverfi sérstaklega hannað fyrir smærri kerfi á tækjum eins og til dæmis strikamerkjalesara, símum og fleira. Oracle Lite má nota til að samstilla við hvaða Oracle gagnagrunn sem er.
  • Oracle 10g Standard Edition hentar vel fyrir minni umhverfi en mörg viðskiptakerfi nota Oracle Standard Edition. Standard Edition er hugsað fyrir vélar sem innihalda fjóra eða færri örgjörva. Standard Edition One er útgáfa sem er miðuð við notkun á vélum sem innihalda tvo eða færri örgjörva.
  • Oracle 10g Enterprise Edition er skilvirkt, öruggt og traust gagnagrunnsumhverfi. Oracle Enterprise Edition inniheldur eiginleika sem tryggja að gögn eru aðgengileg, örugg og að heilindi þeirra eru tryggð. Oracle Entertprise Edition viðbætur eru sérstaklega hannaðar til að auka afkastagetu, skalanleika, öryggi og auðvelda meðhöndlun á gögnum.

Viðbætur

Oracle 10g Enterprise Edition er skilvirkt, öruggt og traust gagnagrunnsumhverfi.

Oracle Enterprise Edition inniheldur eiginleika sem tryggja að gögn eru aðgengileg, örugg og að heilindi þeirra eru tryggð.

Oracle Entertprise Edition viðbætur eru sérstaklega hannaðar til að auka afkastagetu, skalanleika, öryggi og auðvelda meðhöndlun á gögnum. Viðbætur eru eftirfarandi:

Oracle 10g Real Application Cluster

Oracle Real Application Cluster, RAC, er tækni sem eykur afkastagetu og tryggir uppitíma gagnagrunnsins.

Lausnin samanstendur af klösuðu umhverfi þar sem allir miðlar eru samtengdir og öll gögn úr gagnagrunninum eru aðgengileg öllum miðlurum klasans.

Oracle 10g Partitioning

Oracle Partitioning auðveldar utanumhald og meðhöndlun gagna fyrir OLTP, gagnasöfnum og vöruhús gagna.

Með Oracle Partitioning er hægt að skipta töflum og vísum (index) upp minni einingar.

Er meðhöndlun á þessum einingum eins og um eina töflu væri að ræða.

Með þessari uppskiptingu fæst meiri afkastageta, meiri hraði og einfaldara utanumhald.

Oracle 10g Advanced Security

Bætir net-dulkóðun og sterkri auðkenningu við Oracle gagnagrunninn.

Net-dulkóðunin er útfærð með staðlaðri dulkóðun og algorithma.

Auðkenningarhlutinn byggir einnig á stöðlum og inniheldur meðal annars Single Sign On þjónustur með því að geta unnið með fyrirliggjandi auðkenningarumhverfum og tveggja þátta auðkenningarkerfum (eins og t.d. snjallkort).

Oracle 10g Label Security

Sveigjanlegt öryggiskerfi með fínkornóttri aðgangsstýringu sem byggir á raðarmerkjum í töflum.

Oracle Label Security gefur þannig möguleika á að aðgreina gögn og upplýsingar eftir reglum, merkjum og auðkenningu.

Oracle 10g OLAP

Oracle OLAP er öflug reiknivél sem er samþætt við gagnagrunninn. Í OLAP grunni er gögnum raðað upp eftir eftir eðli þeirra.

Á gögnunum er svo hægt að framkvæma greiningar og annað sem illmögulegt er að framkvæma í hefðbundnum rekstrarkerfum.
Oracle OLAP kemur í stað Oracle Express. Töluverð breyting hefur orðið á þessari tækni frá því sem áður var.

Með Oracle9i gagnagrunninum, Oracle9i Application Server og Internet Developer Suite er grunntæknin til að smíða, viðhalda búa til upplýsingar úr gögnum. Innbyggt í Oracle9i gagnagrunninn er ETL, OLAP og gagnaborunareiginleikar.

Gögn og lýsigögn geta þar af leiðandi geymd í sama grunninum í skjóli öryggisþátta Oracle9i, skalanleika og afkastagetu.

Við þetta má bæta að slík högun einfaldar utanumhald verulega.

Einnig má tína til að mikill meirihluti útreikninga er framkvæmanlegur með hreinu SQL og mögulegt er að gögn sem liggja utan grunnsins (e. flat files) má tengja inn í grunninn þar sem hægt er að meðhöndla þau.

Oracle 10g Data Mining

Oracle Data Mining geta fyrirtæki notað til að útfæra öflug viðskiptagreindarkerfi sem greina samhengi, samhengi og hegðun gagna í gagnagrunn.

Þær upplýsingar eru svo samþættar við viðskiptakerfi.

Oracle 10g Spatial

Oracle Spatial samanstendur af mengi aðgerða og ferla til að geyma, meðhöndla og greina staðsetningarvædd gögn hvort sem um er að ræða hrein staðsetningargögn eins og hnit eða gögn með staðsetningareiginleika eins og heimilisfang.

Stuðningur við landfræðileg gögn er fyrir hendi í Oracle.

Annars vegar er um að ræða Oracle Spatial, sem er viðbót og eingöngu hægt að fá með Enterprise Edition, hins vegar Oracle Locator.

Oracle Locator er hluti af bæði Standard og Enterprise Edition.