Starfsfólk

Starfsemi Skýrr byggir á þekkingu og færni starfsmanna.

Starfsmenn mynda samhenta fjölskyldu á skemmtilegum vinnustað þar sem þeir eru virkir þátttakendur og fá svigrúm til frumkvæðis.

Starfsmenn skulu njóta jafnréttis í hvívetna og vera metnir að eigin verðleikum.

Starfsmenn fá tækifæri til að vaxa í starfi með símenntun og að takast á við ögrandi verkefni. Þannig viðhalda þeir og auka þekkingu sína, sjálfsvirðingu og verðmæti.

Skýrr býður góð starfskjör og veitir starfsmönnum hlutdeild í þeim árangri sem næst.