Um Skýrr
Um Skýrr
|
Nafn:
|
Skýrr
|
|
Heimilisfang:
|
Ármúli 2
|
|
Póstnúmer:
|
108
|
|
Póststöð:
|
Reykjavík
|
|
Kennitala:
|
590269-7199
|
|
Vsk-númer:
|
10487
|
|
Tölvupóstur:
|
|
|
Vefur:
Sími:
Fax:
|
569 5100
569 5251
|
Skýrr er framsækið og leiðandi þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni.
Skýrr er eitt stærsta þekkingarfyrirtæki Íslands með um 210 starfsmenn. Skýrr býður fjölbreyttar lausnir og þjónustu, sem svara kröfum og þörfum um 2.200 viðskiptavina. Meðal þeirra eru mörg stærstu og öflugustu fyrirtæki og stofnanir landsins.
Skýrr hefur frá upphafi haft á að skipa mjög hæfu starfsfólki, sem hefur gert það að verkum að fyrirtækið er jafn öflugt og það er í dag. Viðskiptasiðferði og fagleg vinnubrögð eru í hávegum höfð hjá Skýrr, þar sem þarfir og væntingar viðskiptavinarins eru í fyrirrúmi í allri þjónustu fyrirtækisins. Skýrr er eitt örfárra fyrirtækja í þekkingariðnaði með starfsemi sem vottuð er samkvæmt ISO 9001-gæðastaðlinum.
Hlutafélagið Skýrr hóf rekstur 1. janúar 1996, en tók þá yfir alla starfsemi sameignarfélagsins Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar, sem formlega var stofnað í ágúst 1952. Vorið 1997 seldu íslenska ríkið, Reykjavíkurborg og Rafmagnsveita Reykjavíkur 51% af eignarhluta sínum í félaginu og á árinu 1998 seldu þessir sömu aðilar eftirstöðvar hlutabréfaeignar sinnar.
Hlutabréf Skýrr voru skráð í Kauphöll Íslands árið 1998 og voru hluthafar lengst af vel á annað þúsund talsins. Skýrr var síðan afskráð úr Kauphöll Íslands árið 2003 í kjölfar breytinga á eignarhaldi fyrirtækisins. Skýrr er í dag að fullu í eigu Teymis hf. Nánari upplýsingar um Teymi er að finna á vefsvæði félagsins á teymi.is.



