Ráðgjöf og þjónusta
Það er stefna Skýrr að átta sig á þörfum og væntingum viðskiptavina, uppfylla þær og þjóna þeim sem best á hverjum tíma. Góð þjónusta er að gera viðskiptavini ánægða.
Þess vegna leitast starfsfólk Skýrr ávallt við að þróa og bæta þjónustu fyrirtækisins við viðskiptavini sína, báðum aðilum til hagsbóta.Þjónustuborð 24/7
Þjónustuborð Skýrr er lausn fyrir fyrirtæki sem vilja bæta þjónustu til viðskiptavina sinna. Þjónustuborð Skýrr er mannað sérfræðingum allan sólahringinn með víðamikla tækniþekkingu.
Þjónustu og ráðgjafardeild
Þjónustu- og ráðgjafardeild tengir saman bókhalds- og forritunarþekkingu. Þar starfar viðskiptamenntað fólk sem hefur reynslu af störfum við bókhald og getur því aðstoðað viðskiptavini fyrirtækisins við hina daglegu vinnu í kerfinu.
Í stórum dráttum má segja að hlutverk þjónustudeildarinnar sé að aðstoða viðskiptavini við allt sem viðkemur Fjölni, Microsoft Dynamics NAV, Microsoft Dynamics AX og Microsoft Dynamics XAL. Oft er um að ræða aðstoð við vinnu í kerfinu en einnig er mjög algengt að við veitum liðsinni við ýmsar aðlaganir kerfisins að þörfum viðskiptavinarins.

