Skilmálar
Notkunarskilmálar Internetþjónustu Skýrr
1. Skilmálar þessir gilda fyrir allar Internettengingar, lénaskráningar og vefsvæði. Þeir kunna að vera endurskoðaðir án fyrirvara ef þörf krefur.
2. Ef skilmálar þessir eru brotnir getur það valdið tafarlausri lokun tengingar og vefja án fyrirvara.
3. Skýrr mun eftir fremsta megni tryggja öryggi og trúnað viðskiptavina og þeirra gagna sem þeir kunna að geyma á búnaði Skýrr.
4. Skýrr ber þó hvorki ábyrgð á tjóni sem kann að orsakast af tengingunni né ef ekki er hægt að nota tenginguna af einhverjum ástæðum. Skýrr ber ekki ábyrgð á gögnum sem kunna að tapast eða skemmast sem geymd eru á búnaði Skýrr. Skýrr ber ekki ábyrgð á tjóni sem þriðji aðili veldur. Til dæmis með skemmdum á efni sem geymt er á búnaði Skýrr.
5. Haga skal notkun í samræmi við góða siði og umgengnisreglur sem almennt eru viðurkenndar á Internetinu.
6. Óheimilt er að nota aðgang annarra. Þar með talið er óheimilt að lána aðgangsorð, reyna að komast yfir aðgangs- og lykilorð annarra eða nota á annan hátt gögn eða samskipti sem tilheyra öðrum.
7. Óheimilt er að nota aðganginn til að að brjótast eða að reyna að brjótast inn í tölvukerfi eða tölvunet annarra eða til að valda tjóni á búnaði eða gögnum. Skýrr ber ekki ábyrgð á því tjóni sem slíkt kann að valda.
8. Óheimilt er að trufla samskipti eða valda óeðlilegu álagi á tengingum annarra.
9. Óheimilt er að villa á sér heimildir í samskiptum til dæmis þegar sendur er tölvupóstur eða á annan hátt.
10. Óheimilt er að nota aðganginn til að vísvitandi dreifa tölvuveirum eða öðru sem kann að valda skaða hjá viðtakanda.
11. Óheimilt er að nota aðganginn til óumbeðinna fjöldasendinga. Óheimilt er að senda annan magnpóst sem ekki inniheldur réttar upplýsingar um sendanda. Óheimilt er að nota aðganginn til að taka við svörum á slíkum pósti. Óheimilt er að senda póst sem getur valdið öðrum óþægindum eða miska (til dæmis hótanir, klám eða stolin gögn).
12. Fylgja skal þeim reglum sem gilda á hverri ráðstefnu Newsnet/Usenet).
13. Fylgja skal þeim reglum sem gilda á spjallrásum (IRC). Notkun þeirra er þó á eigin ábyrgð
14. Óheimilt er að nota tenginguna til að dreifa efni þannig að það brjóti í bága við lög og reglur. Til dæmis lög um eignarrétt, höfundarrétt eða almennt velsæmi.
15. Óheimilt er að birta efni á heimasíðum sem ekki er í samræmi við lög og reglur eða almennt velsæmi. Þar með talið er efni sem er ærumeiðandi.
16. Skýrr lýsir því yfir að allt efni sem birt er á vefsvæðum viðskiptavina fyrirtækisins er á þeirra eigin ábyrgð og standa þau algerlega ábyrg gerða sinna á eigin vefsvæðum.
17. Skráður eigandi tengingar, léns eða vefsvæðis telst ábyrgur fyrir því að þessum reglum sé fylgt.

