IP símalausn

Símalausnir Skýrr er hýst þjónusta innann Skýrr þannig að þú þarft ekki að sjá um tæknilegan rekstur né að halda uppi mannskap til að reka þann búnað sem til þarf. þú einfaldlega skráir þig inn í gegnum þægilegt notanda vefviðmót og sérð svo um að stjórna þínu símkerfi eins og þér hentar á einstaklega aðgengilegan og einfaldan hátt.

Símalausn Skýrr, er hýst miðlæg lausn af fullkomnustu gerð. Með Símalausn Skýrr, sameinum við háhraða Internet tengingu og síma, sem sparar þér símalínugjöld inn í fyrirtækið þitt. Símkerfið einfaldar samskipti milli fyrirtækisins og viðskiptavina og er mjög sveigjanlegt í uppsetningu og er auðvelt að breyta eftir að það hefur verið sett upp.

Þægindi

símalausninni, getur þú hringt beint af flestum vefsíðum með því að velja númerið og smella á „dial“, einfalt og þægilegt. Þú þarft ekki að kaupa símstöð. Þú einfaldlega leigir aðgang að Símalausn Skýrr, fyrir eins marga starfsmenn og þurfa þykir. Allar uppfærslur á Símalausninni eru innifaldar í mánaðarverði. Úrelding á símstöðvum er ekki lengur inn í myndinni. Símalausnin stækkar eða minnkar með fyrirtækinu á einfaldan máta. Símtöl milli borðsíma og farsíma innan kennitölu fyrirtækisins eru frí svo lengi sem farsíminn er í áskrift hjá Vodafone. Með Símalausn Skýrr, er það tæknimaður fyrirtækisins sem stjórnar aðgerðum. Ekki þarf lengur að kalla til sérfræðings ef bæta þarf við símum, setja upp hringihóp, talhólf o.þ.h.. Ertu að missa af mikilvægu símtali ? Með Símalausn Skýrr, getur þú stjórnað símtölunum í símanúmerið þitt. Með einu músar klikki, getur þú t.d. beint öllum símtölum í GSM síma, beint símtölum í annan borðsíma, beint símtölum í annað númer eftir t.d. 3 hringingar eða sent öll símtöl í talhólf sem þú svo hlustar á úr póstkerfinu þínu og svo framvegis. Flestum stillingum, stjórnar endanotandi símtækisins með einföldum hætti með tækjastikuni sem birtist með Outlook og Explorer.

Dreifð starfsemi ?

Símalausn Skýrr hentar mjög vel fyrirtækjum með dreifða starfssemi. Með því að leigja aðgang að Símalausn Skýrr, nærð þú að tengja öll útibúin við eina símstöð.  Tæknimaður fyrirtækisins stjórnar símkerfinu með vefviðmóti, og getur því sett upp, lokað símum fyrirtækisins hvar
sem er á landinu (heiminum þess vegna) er hann situr við tölvuna sína.

Skýrslur úr símkerfinu.


Hægt er að fá skýrslur úr Símkerfinu sendar á netfang stjórnunarlegs tengiliðs.  Er þá ákveðið fyrirfram hvað viðkomandi stjórnandi vill sjá, t.d. hvað höfum við misst af mörgum símtölum yfir daginn, yfir vikuna eða mánuðinn svo eitthvað sé nefnt.  Hægt er að sjá símtöl brotið niður á hvert einasta númer í fyrirtækinu.  Hægt er að fá skýrslu senda daglega, vikulega eða mánaðarlega.