Ábyrgðarskilmálar vegna símalausna
Almennir skilmálar
Skilmálar þessir gilda fyrir aðgang að Símalausnum Skýrr, skilmálar þessi kunna að vera endurskoðaðir án fyrirvara ef þörf krefur. Skilmálar þessir gilda milli rétthafa símanúmers (hér á eftir viðskiptavinur) og Skýrr hf.Viðskiptavinur heimilar Skýrr að panta númeraflutning hjá öðrum þjónustuveitum fyrir sína hönd, Viðskiptavinur þarf að óska sérstaklega eftir læsingum og öðrum aukaþjónustum sem í boði eru. Skýrr ber ekki ábyrgð þó símasamband til viðskiptavinar rofni, viðskiptavinur getur ekki krafið Skýrr um bætur vegna tjóns, beint eða óbeint vegna bilana eða annarra truflana sem kunna að verða á aðgengi notanda að símaþjónustu Skýrr sbr. ákvæði fjarskiptalaga um ábyrgðartakmarkanir. Skýrr ber ekki ábyrgð á sambandsrofi sem getur orsakast vegna breytinga á tengimáta og/eða flutnings á símanúmeri milli þjónustuaðila.
Skýrr vekur athygli viðskiptavinar á því að hefðbundin símanúmer eru skráð á heimilisfang, Skýrr ber ekki ábyrgð á aðgengi að Neyðarlínunni-112 ef viðskiptavinur færir aðgang sinn að símalausnum Skýrr milli nettengipunkta/heimilisfanga.
Svokölluð flökkunúmer eru ætluð notendum sem vilja hafa símaðaðgengi frá mismunandi staðsetningu og eru þá slíkt númer ekki skráð á sérstök heimilisföng.
Greiðsluskilmálar Símaþjónustu er samkvæmt gjaldskrá hverju sinni sem getur breyst án fyrirvara. Viðskiptavinur ber ábyrgð á greiðslum til Skýrr vegna þeirrar notkunar sem á sér stað óháð því hvort hann hafi heimilað notkunina eða ekki. Athugasemdir skulu gerðar við útgefna reikninga án tafar og eigi síðar en á eindaga, ella telst reikningur samþykktur.
Skýrr er heimilt að loka á öll útfarandi símtöl að neyðarnúmerinu 112 undanskildu þegar liðnir eru 30 dagar frá eindaga skuldar og aftengja notenda, þ.e. alfarið loka á öll símtöl eftir 60 daga ef skuld hefur ekki verið greidd. Fyrir enduropnun þjónustu greiðist sérstakt gjald skv. verðskrá.
Uppsögn Báðir aðilar geta sagt upp þjónustusamningi með minnst eins mánaðar fyrirvara og skal uppsögnin vera skrifleg.Uppsögn miðast við upphaf nýs reikningstímabils, þann 1. hvers mánaðar.

