Verkefni

Skýrr hf. hefur verið með í tilraunaverkefni ríkisins vegna rafrænna skilríkja frá árinu 2003 eða frá upphafi. Mikil þekking og reynsla hefur orðið til innan Skýrr í því verkefni auk annarra verkefna tengdum rafrænum skilríkjum. Hjá Skýrr starfar fjöldi sérfræðinga með víðtæka þekkingu á rafrænum skilríkjum og lausnum þeim tengdum.

Verkefni sem Skýrr hefur innleitt rafræn skilríki eru m.a.

  • Skattframtöl á vef
  • Tollafgreiðsla á vef
  • Vegabréfaútgáfa

Tollstjórinn og ríkisskattstjóri nýta skilríkin mest allra stofnana og þau eru mikilvægur hlekkur í starfsemi þeirra. Tollstjórinn nýtir skilríkin við veftollafgreiðslu tollskýrslna en ríkisskattstjóri notar þau fyrir rafræn skil endurskoðanda á skattskýrslum. Útgáfa rafrænna íslenskra vegabréfa með lífkennaupplýsingum hófst 17. maí 2006.


Rafræn skilríki á debetkortum

Skýrr hf. er íslenskur birgir og í forsvari fyrir heildarlausn erlendra lausnaraðila í samstarfi Fjármálaráðuneytis og Sambands banka- og verðbréfafyrirtækja um dreifingu á rafrænum skilríkjum á debetkortum. Uppsetning kerfisins er hafin af fullum krafti.

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Skýrr í rafrænum skilríkjum Netfang: vottun@skyrr.is
Sími: 5695100