Rafræn skilríki

Skýrr hf. býður uppá faglega ráðgjöf, forritun, þjónustu og innleiðingu á rafrænum skilríkjum fyrir stofnanir og fyrirtæki.
Rafræn skilríki hafa hliðstæðan tilgang og önnur persónuskilríki við auðkenningu. Að auki nýtast þau til rafrænnar undirritunar sem m.a. tryggir heilleika gagna og staðfestir uppruna þeirra. Virkni rafrænna skilríkja er í stuttu máli tvíþætt:
  1. Auðkenning: Rafrænt skilríki sem tryggir á sannanlegan hátt að aðili sé sá sem hann segist vera
  2. Undirritun: Unnt er að undirrita samninga eða eyðublöð* á skuldbindandi hátt með rafrænum skilríkjum.

*Hægt er að nota skilríkin með ýmsum hugbúnaði s.s. Acrobat og Word.


Lagaumhverfi

Með lögum um rafrænar undirskriftir og um rafræn viðskipti frá 2001 og breytingum á stjórnsýslulögum vegna rafrænnar stjórnsýslu hafa meginlínur verið lagðar að traustum lagagrundvelli. Í stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið eru sett fram eftirfarandi markmið um rafræn skilríki:

  1. Stefna ber að því að notkun rafrænna skilríkja verði almenn og útbreidd svo bera megi kennsl á samskiptaaðila á öruggan hátt, og að komið verði við rafrænum undirskriftum og dulritun eftir því sem við á.
  2. Stefna ber að opnum en stöðluðum markaði með rafræn skilríki og vottunarþjónustu. Gefnar verði út kröfur ríkisins um innihald, form og meðferð rafrænna skilríkja í samskiptum við stofnanir ríkisins. Þær kröfur gætu orðið fyrirmynd að almennu dreifilyklakerfi fyrir atvinnulíf og sveitarfélög. Stefnt verði að einföldu kerfi og hagkvæmu í rekstri, og að kostnaður dreifist í hlutfalli við hag notenda.

Fylgt verði evrópskum og alþjóðlegum stöðlum og stefnt að samþættingu við dreifilyklakerfi grannlandanna þegar tímabært þykir.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Skýrr í rafrænum skilríkjum Netfang: vottun@skyrr.is Sími: 5695100