Kerfisleiga

Kerfisleiga gerir fyrirtækjum kleift að ná niður kostnaði og auka hagkvæmni við notkun og rekstur upplýsingatækni.

Kerfisleiga - Sveigjanleg lausn

Kerfisleiga veitir aðgang að fullkomnu, miðlægu upplýsingakerfi í öruggu umhverfi. Kerfisleiga sparar fyrirtækjum að fjárfesta í dýrum búnaði sem sífellt þarfnast endurnýjunar og viðhalds. Með kerfisleigu fá viðskiptavinir aðgang að eigin vinnuumhverfi (desktop), gögnum og hugbúnaði gegnum öruggt umhverfi, sem er hýst og vaktað á miðlægum búnaði allan sólarhringinn. Kerfisleiga Skýrr býður fastar mánaðargreiðslur. Fyrirtæki þurfa hvorki að leggja út í viðamiklar fjárfestingar í vélbúnaði í upphafi né fjárfrekan rekstur á honum í eigin umhverfi í kjölfarið.

Mögulegt er að reka nær allan Windows hugbúnað hjá kerfisleigu Skýrr. Þar má telja Microsoft Office og nær allar tegundir fjárhags- og mannauðskerfa.

Skýrr hefur áratuga reynslu af kerfisleigu og uppfyllir ströngustu kröfur atvinnulífsins um hagkvæmni, afköst, áreiðanleika, þjónustu og öryggi.

 

Helstu kostir kerfisleigu

  • Aðgengi að vinnuumhverfi hvar sem er
  • Rekstur Microsoft Office hugbúnaðar
  • Rekstur viðskiptahugbúnaðar fyrir Windows
  • Sérfræðiþjónusta alltaf við höndina
  • Þjónustuborð opið allan sólarhringinn
  • Líftími útstöðva getur tvöfaldast
  • Minni eða engin fjárfesting í miðlurum
  • Útvistun í hæsta gæðaflokki
  • Vöktun gegn tölvuinnbrotum
  • Örugg afritun og aðgengi gagna
  • Aukin hagkvæmni og lægri kostnaður
  • Áreiðanleiki, sveigjanleiki og vinnsluafl
  • Fastar greiðslur á mánuði

 

Skýrr í hnotskurn

Skýrr býður atvinnulífinu fjölbreyttar og samþættar heildarlausnir á sviði hugbúnaðar og ekstrarþjónustu. Allt á einum stað. Fyrirtækið er samstarfsaðili SAP BusinessObjects, Microsoft, Oracle og VeriSign. Starfsemi Skýrr er vottuð samkvæmt ISO 9001 og ISO 27001. Starfsfólk fyrirtækisins er tæplega 200 talsins og viðskiptavinir eru liðlega 2.000.

 

Nánari upplýsingar

skyrr@skyrr.is 

Fara í vefpóst

Vefpóstur

Tilboð

Tilboð til nýrra viðskiptavina. Skýrr býður nýjum viðskiptavinum í kerfisleigu fyrsta mánuðinn ókeypis. Um er að ræða niðurfellingu á helstu gjöldum í heilan mánuð, svo sem fyrir hugbúnaðarleyfi og þjónustu.

Hafðu samband hið fyrsta í skyrr@skyrr.is eða 569 5100 til að nýta þér þetta tilboð eða fá frekari upplýsingar.