FrameRelay - ATM
Fyritæki um allt land geta tengst þjónustukerfi Skýrr í gegnum ATM net Landssíma Íslands. Hringinn í kringum landið hafa verið settar ATM stöðvar sem tengdar eru saman á stærsta ljósleiðaraneti landsins og mynda þannig ATM netið.
ATM netið er lokað fjölþjónustunet sem flutt getur allan þekktan fjarskiptamáta, svo sem tal, myndir og gögn. Þannig er t.d hægt að flytja bæði tal og gögn yfir sömu flutningsleið og ná þannig hagræði í rekstri.
Uppbygging víðnets á ATM neti Landssímans hefur auk þess marga kosti í för með sér, svo sem öryggi, hagkvæmni, einsleitt umhverfi, tryggða bandvídd, sveigjanleika og ótakmarkaða möguleika á stækkun.
ATM netið er m.a. flutningsnet fyrir FrameRelay gagnaflutningsþjónustu Símans ásamt því að boðið er upp á hreina ATM þjónustu.
FrameRelay er sveigjanleg gagnaflutningstækni sem er einkum notuð til að tengja saman staðarnet fyrirtækja. Með FrameRelay er hægt að veita hágæða fjarskiptaþjónustu með hraða, hagkvæmni og öryggi að leiðarljósi.
FrameRelay hentar þeim fyrirtækjum vel sem staðsett eru á fleiri en einum stað á landinu og vilja að útibúin hafi gott samband við höfuðstöðvarnar. Tengingin gerir fyrirtækjum kleift að tengjast fleiri en einum stað með einungis einni FrameRelay tengingu en byggir tæknin á alþjóðlegum stöðlum og hægt er að veita hana á einfaldan hátt yfir ATM net.
Þjónustan veitir aðgangshraða frá 64 kb/s upp í 2 Mb/s. Ef þörf er fyrir meiri hraða er hægt að bjóða aðra fjarskiptahætti yfir ATM netið og jafnvel hafa sveigjanlegan gagnahraða. Hægt er að tryggja sér lágmarkshraða á álagstímum frá 25% til 75%.

