ADSL

ADSL er heiti gagnaflutningsþjónustu frá Landssímanum sem nýtir hefðbundnar kopar símalínur til háhraða Internettengingar til Skýrr. ADSL hentar vel sem Internettenging fyrir minni fyrirtæki. 

Með ADSL er mögulegt að vera sítengdur Internetinu og því greitt fast mánaðargjald fyrir þjónustuna án tillits til tengitíma heldur einungis niðurhali (download) gagna.

 Í ADSL kerfinu er í boði tengihraði sem spannar frá 256 Kbps til 1,5 Mbps til notanda en að hámarki 384 Kbps frá notanda.  ADSL þjónusta er í boði á nær öllu höfuðborgarsvæðinu.


Kostnaður við ADSL er tvískiptur: annars vegar þarf að greiða fyrir ADSL tenginguna sjálfa (línuna) og hins vegar þarf að greiða fyrir Internetþjónustu til Skýrr.

Skýrr getur sótt um ADSL línu fyrir viðskiptavini sína ásamt því að annast allar uppsetningar á endabúnaði sem og tölvukerfi hjá viðskiptavinum.  Skýrr selur endabúnað fyrir ADSL teningar til fyrirtækja; ADSL routera.

Hafðu samband við söludeild  Internetþjónustu til að fá nánari upplýsingar eða fáðu tilboð.