Rekstrarþjónusta
Örugg hýsing og rekstur á upplýsingatæknikerfum. Að reka flókin tölvukerfi í dag er ómögulegt án þess að hafa til þess þekkingu og tæki sem öll miða að því að tryggja aðgengi að upplýsingum.
Við hjá Rekstrarlausnum Skýrr byggjum á margra ára reynslu og höfum þróað aðferðir sem taka á sex helstu atriðum öruggrar hýsingar og reksturs á upplýsingatæknikerfum. Sérfræðiþjónusta okkar er þróuð með flókið tækniumhverfi í huga sem tekur er mið af fjölbreytilegum vél- og hugbúnaði. Við höfum skipulagt, prófað og nýtt þessa þjónustu með þekktum tólum og tækjum frá öllum helstu hugbúnaðar- og vélbúnaðarframleiðendum heims ásamt því að þróa sérsniðnar lausnir fyrir okkar viðskiptavini. Sérfræðiþjónusta okkar tryggir þér meira rekstraröryggi, hámarks uppitíma tölvukerfisins, lægri rekstrarkostnað og lágmarks bilanatíðni.
Hvaða þjónusta hentar þínu fyrirtæki?
Þjónusta Rekstrarlausna Skýrr lagar sig að þörfum þíns fyrirtækis. Kynntu þér þjónstu okkar hér að neðan.
Nánari upplýsingar:
Tilboð til viðskiptavina
Skýrr býður nýjum viðskiptavinum í rekstrarþjónustu fyrsta mánuð samnings ókeypis. Tilboðið gildir meðal annars um hýsingu og afritun.
Hafðu samband við skyrr@skyrr.is eða 569 5100 til að kynna þér þetta tilboð nánar.
Öll fyrirtæki eru háð upplýsingum. Í dag er vaxandi vandamál vaxandi fyrirtækja tengd of litlu geymslusvæði fyrir gögn og upplýsingar. Stækkun á vistunarbúnaði er fyrirferðamikil og kostnaðarsöm aðgerð. Hýsingarþjónusta Skýrr gerir viðskiptavinum kleyft að einbeita sér frekar að vexti og stækkun fyrirtækisins á meðan Skýrr sér um að nægjanlegt diskapláss sé fyrir mikilvæg gögn og upplýsingar.
SAN lausn Skýrr
SAN lausn Skýrr veitir fyrirtækjum og stofnunum aðgang að sveigjanlegri og öruggri diskalausn. Lausnin veitir okkur möguleika á að ræða miðlara beint upp af SAN stæðunni sem gefur mikla möguleika í vaxtarhraða og öryggi í meðhöndlun gagnanna á SAN diskastæðunni. Einnig eru auknir möguleikar í færslu á gögnum á milli miðlara og mismunandi hýsingarlausna. Kostir eru m.a.:Afköst
SAN diskastæðan hjá Skýrr er hönnuð fyrir mikið gagnaálag eins og fyrir vöruhús eða þungar og fyrirferðamiklar gagnagrunns vinnslur. Sökum stærðar er afkastageta diskastæðunnar mikil.Áreiðanleiki
Mörg lög af diskum tryggja 100% áreiðanleika og aðgengi að mikilvægum gögnum. Lágmarks RAID 5 er á aðaldiskastæðunni ásamt “hotspare” diskum, “phone-home” tryggingu bæði til Bandaríkjanna og Danmerkur auk þess sem Þjónustuver Skýrr fylgist vel með 24/7 alla daga ársins. Þá er auka aðgengi að rafmagni, UPS sem tryggir uppitíma í 90 mínútur, diesel varaaflstöð sem tryggir nægilega mikið rafmagn til að reka alla vélarsali Skýrr. VIð höfum hannað diskastæðurnar okkar þannig að það er engin einn veikur punktur.Stækkunarmöguleiki
Fyrirtæki þitt getur aukið diskanotkun dag frá degi. Að stækka frá 100GB upp í 50TB er gert með einni einfaldri aðgerð. Með búnað frá leiðandi framleiðendum á þessu sviði s.s. HP og EMC2 og öllum sérfræðingum Rekstrarlausna Skýrr í diskalausnum að vopni getum við vaxið hratt um leið og fyrirtækið vex án niðritíma og vandræða.
Vel útfært og skipulagt afritunarferli er besta leiðin til að vernda mikilvæg gögn fyrirtækja, gegn innbroti í tölvukerfi, vírusum og öðrum þeim hættum sem steðja að.
Afritun og varðveisla mikilvægra gagna
Skýrr bíður fullkomna þjónustu afritunar og endurheimtingu af gögnunum þínum með því að nýta öfluga samsetningu á búnaði Skýrr, þróað afritunarferli og öguðum vinnubrögðum.Þarfagreiningu
Hvert einasta verkefni er einstakt. Þess vegna þurfa sérfræðingar okkar að skoða hvert verkefni sérstaklega til að uppfylla sem best afritunarþörf hvers fyrirtækis eða stofnunar. Eftir slíka greiningu liggja fyrir þeir þættir sem þarf að huga að við afritunina, hvernig best er að standa að uppsetningu afritunarferlisins, því gagnamagni sem skal afrita, geymslutíma gagnanna, o.s.frv.Áætlun
Við framkvæmum alla afritunartöku á okkar eigin búnaði og á háhraðaneti Skýrr. Þannig eru settar upp áætlanir fyrir heildarafrit og breytingaafrit. Ef þörf er fyrir breytingu á þessu er hægt að auka á tíðni afrita yfir ákveðin tímabil.Áreiðanleikaprófun
Prófanir á áreiðanleika afritunarinnar eru framkvæmdar reglulega. Þessi aðgerð er nauðsynlega og er í raun ekki valkostur þegar fyrirtæki nýta sér afritunarþjónustu Skýrr. Prófanirnar tryggja að afritun hafi tekist sem skyldi og að gögnin séu þar með örygg. Ef einhvern merki eru um bilun í afritun eru hún endurtekin samstundis. Við notum stærstu afritunarlausnir á markaðnum til að tryggja miðlæga stjórnun á afritunarferlum hundruða viðskiptavina okkar.Hýsingarvalkostir
Geymsla á afrituðum gögnum er annað hvort á spólum eða á diskum eða hvoru tveggja. Ef gögn eru vistuð á spólum þá eru þær geymdar í öruggu hólfi utan Skýrr.Endurheimtur
Sérfræðingar okkar endurheimta afrit af gögnum ef um gagnatap er að ræða. Þessi þjónustu nær til fullrar endurheimtu afrita á öllum gögnum viðskiptavinar.
Rekstur miðlara ásamt því umhverfi sem sett hefur verið upp hjá Skýrr til að reka og tryggja öryggi miðlara krefst gríðarlegrar fjárfestingar í tækniumhverfi sem og þjálfun á fólki. Fá fyrirtæki vilja binda það fjármagn sem þarf til þess að reka og tryggja öryggi í vélarsal.
Rekstrarþjónustu Skýrr
Skýrr býður alhliða rekstraþjónustu á kerfum sem eru ætluð fyrir raunumhverfi meðalstórra og stórra fyrirtækja.Eldveggur Skýrr
Við stýrum og rekum einn af öflugri eldveggjum á Íslandi. Þessi þjónusta innifelur einnig aðgang að beinum, svissum, SSL, eldveggjum og VPN tengingum.Rekstur á vélbúnaði
Við eru stöðugt á vakt yfir ástandi vélbúnaðar viðskiptavina okkar til þess að greina og bregðast við truflunum eða mögulegum bilunum á búnaðinum. Þetta kemur í veg fyrir óskipulagðan niðritíma og tryggir þannig hágmarks uppitíma og afköst.Rekstur á hugbúnaði
Við sjáum einnig um rekstur stýrikerfis á vélbúnaði og annan hugbúnað sem lítur að rekstri á stýrikerfum. Þetta er m.a. rýmdaráætlanir, sem og prófanir og innkeyrsla á öryggis"pötsum", öryggisuppfærslum, nýjum útgáfum og endurbætum. Með því að fylgjast náið með skráningum (loggum) og öðrum mælum getum við brugðist við hugsanlegum vandamálum áður en þau koma upp, svo sem afköst miðlara, ónóg minnisþörf, álag á miðlara, diska notkun, o.þ.h.Rekstur lausna
Að auki rekum við ákveðnar hugbúnaðarlausnir í kerfisleigu s.s. Exchange, Navision og Oracle ásamt öllum þeim lausnum sem Skýrr hefur smíðað. Þjónustan felur einnig í sér afritun yfir net, gagnagrunns stjórnun og gagnaflutning.
Takmarkandi þættir í vexti fyrirtækja geta verið hve seint gengur að fá búnað og setja hann upp. Það getur verið mjög hamlandi fyrir vaxandi fyrirtæki ef búnaður er ekki til staðar til að taka við síbreytilegu eða auknu álagi. Skýrr hefur fjárfest í tækni og færni starfsmanna til þess að bregðast fljótt við auknum kröfum um leið og þær berast.
Skýrr býður hraða og hagkvæma þjónustu í vexti og skalanleika sem inniheldur m.a.:
klukkustunda.
Skýrr býður hraða og hagkvæma þjónustu í vexti og skalanleika sem inniheldur m.a.:
Uppsetning frá A til Ö
Skýrr getur séð um hvert atriði í uppsetningu miðlaranna, allt frá kaupum á búnaði og annara íhluta, til uppsetningar kerfisins og prófana. Við eigum á lager nægilega mikið magn af vélbúnaði til að bregðast við bilunum og getum skipt hratt út vélbúnaði sem bilar.Uppsetningartrygging
Skýrr getur boðið fastan tímaramma í uppsetningum. Uppsetningartrygging þýðir að ef tímarammi stenst ekki greiðir viðskiptavinur ekki fyrir uppsetninguna (eða fær hana endurgreidda). Skýrr getur brugðist hratt við óskum um aukna rýmd, jafnvel innan fárraklukkustunda.
Rýmdaráætlanir
Skýrr vinnur náið með viðskiptavinum sínum í kröfustjórnun og áætlanagerð til þess að geta áætlað með meiri nákvæmni hverja vélbúnaðarþarfir verða á næstu misserum. Þannig er hægt að bregðast við áður en vandamál kemur upp sem krefst aukins búnaðar.Vöktun og eftirlit
Skýrr notar mörg kerfi við vöktun og eftirlit á búnaði m.a. frá Microsoft, Nagios og HP Open View. Við fylgjumst með vélbúnaði, hugbúnaði, virkni kerfa og ástandi gagnagrunna og veitum sérfræðiráðgjöf til að bregðast rétt við eftir atvikum.
Án þess að vakta eða fylgjast grannt með ástandi kerfanna getur fyrirtæki tapað mikilvægum gögnum s.s. þegar diskar fyllast, töflur í gagnagrunnum fyllast, öryggislekar, minnislekar eða villur sem finnast ekki fyrir strax. Vöktun og eftirlit hjá Skýrr veitir þér 360 gráðu sýn á ástandi kerfisins og gefur þér kosta á það fylgjast grannt með ástandi hýsingarlausnarinnar.
Network Layer
Við fylgjumst með öllum beinum og svissum til að tryggja fullkomið öryggi í vélarsalnum. Við fylgjumst líka með öllu netinu hjá þér, bandbreiddarmálum og höfum heildarsýn á Internettengingunni þinni.Vélarsalur
Sérfræðingar Skýrr fylgjast reglulega með ástandi allra diskaturna, miðlaraskápa, varaaflgjafa, öryggiskerfa og stuðningskerfa, s.s. myndavéla-, brunavarna- og þjófavarnakerfa. Sjálfvirk eftirlitskerfi fylgjast einnig með en um leið er mönnuð stjórnstöð með vakandi auga yfir öllum mælum og grípur til aðgerða ef á þarf að halda.Hugbúnaður og gagnagrunnar
Við notum nákvæm kerfi til að fylgjast með viðfangi og gagnagrunnum. Við notum svo þessar mælingar til að bæta afköst, aðgengi og diskaafköst.Ferli og þjónusta
Viðskiptavinir okkar treysta á okkur til að mæla marga ólíka þætti er lúta að rekstri í umhverfi upplýsingatækninnar. Sérsniðið vöktunarferli er auðvelt að setja upp sem mætir þörfum hvers og eins enda eru allir innviðir til staðar s.s. fólk, kerfi og ferli.
Öryggisbrestir í neti fyrirtækja kosta árlega hundruðir milljóna á heimsvísu. Skýrr hefur á að skipa mjög öflugum búnaði og tæknifólki sem sér um að vernda netið og hýsingarumhverfið hjá Skýrr fyrir árásum hakkara og vírusa. Skýrr hefur hlotið vottun frá bandaríska öryggislyklafyrirtækinu Verisign. Sú vottun hefur haft mest áhrif á öryggisumhverfi fyrirtækisins til þessa.

