Uppsetning
iFolder er þjónusta sem veitir aðgang að gögnunum þínum hvar og hvenær sem er.Kerfiskröfur fyrir iFolder hugbúnaðinn
iFolder búnaður er studdur á eftirfarandi stýrikerfum
- Windows 2000 / XP / 2003 (með .NET 1.1 ásamt öllum leiðréttingum)
- MacOS X 10.3 (með Mono framework)
- Novell Linux Desktop 9 (með Mono framework)
iFolder hugbúnaður styður við eftirfarandi netvafra:
- Internet Explorer 5.0 eða nýrri
iFolder hugbúnaðurinn þarf virka Internet tengingu.
Nánari upplýsingar
Ef þú þarft frekari aðstoð þá vinsamlegast hafðu samband við Þjónustuborð Skýrr í síma 569-5100 eða sendu póst á rl@skyrr.is
Stýrikerfi
- Windows
- Mac
- Linux
iFolder 2.1
1.0 Uppsetning og notkun á iFolder búnaði
Leiðbeinngar á ensku má einnig finna á heimasíðu iFolder.
Novell iFolder er netlæg hugbúnaðarþjónusta sem gerir notendum kleift að geyma skrár sínar á miðlægum netþjóni og nálgast þær frá fleiri en einni vinnustöð í gegnum Netið. Það skiptir ekki máli hvar notendur eru staddir, því iFolder samræmir örugglega allar staðbundnar skrár sem hafa verið vistað í iFolder skráasafni, óháð vinnustöð og iFolder-miðlara. Allt sem þarf er nettenging og iFolder-búnaður eða vafri (browser).
iFolder veitir sveigjanleika við vinnslu eigin skráa, hvort heldur notandi er tengdur eða ótengdur, frá mismunandi tölvum á vinnustaðnum, skólanum, heima eða frá tölvu hinum megin á hnettinum.
iFolder býður upp á eftirtalda kosti:
- Sjálfvirk afritun staðbundinna skráa á miðlægan iFolder-netþjón.
- Sjálfvirk uppfærsla skráa á öllum virkum vinnustöðvum notenda.
- Aðgangur með vafra að skrám á iFolder-miðlara frá hvaða tölvu sem (iFolder-búnaður óþarfur).
- Afritun gagna á miðlægum iFolder netþjóni.
Notendur vinna með iFolder í fullvissu um að skrár eru öruggar, aðgengilegar og stöðugt uppfærðar. Vinnuumhverfið gerbreytist fyrir vikið og öðlast stóraukinn sveigjanleika þar sem hægt er að ganga að gögnum hvar og hvenær sem er.
2.0 Uppsetning iFolder-búnaði á vinnustöðvum
Notendur geta sett upp iFolder-búnað upp á allar vinnustöðvar sem þeir nota hversdags í vinnu eða heima. iFolder-búnaðurinn styður eftirtalin Microsoft-stýrikerfi:
- Windows 98/ME
- Windows 2000 Professional
- Windows XP Home & Professional
Til að notfæra sér sjálfvirka samræmingu skráa á iFolder-miðlara þarf að setja iFolder-búnaðinn upp á öllum vinnustöðvum notenda. Samt sem áður er hægt að nálgast allar skrár á iFolder-miðlaranum frá hvaða tölvu eða handtölvu sem er, svo framarlega sem viðkomandi tölva hefur virka Internettengingu og vafra.
2.1 Forkröfur
Áður en iFolder-búnaðurnn er settur upp verður vinnustöðin einungis að upfylla eftirfarandi skilyrði:
- Hafa vafrann Internet Explorer (IE) 5.0 eða nýrri útgáfu
- Vera með virka tengingu við Internetið
2.2 Uppsetning
Þegar forkröfurnar eru uppfylltar er hægt að setja iFolder-búnaðinn upp á vinnustöðina.
1. Með vafra er farið á iFolder-vefsvæðið, http://ifolder.skyrr.is og þaðan er uppsetningarforritið fyrir iFolder-búnaðinn sótt (skráin nefnist ifolderclient21.exe) og sett í bráðabirgða skráasafn.
2. Til að hefja uppsetninguna, er farið í bráðabirgðaskráasafnið, tvísmellt á folderclient21.exe-táknið og síðan er leiðbeiningum sem birtast á skjánum fylgt.
3. Að uppsetningu lokinni er iFolder ræstur til að stilla iFolder fyrir viðkomandi vinnustöð á eftirfarandi hátt:
- Ef vélinni er stýrt af Windows XP, endurræsið tölvuna. iFolder-búnaðurinn fer sjálfkrafa af stað þegar stýrikerfið er endurræst.
- Ef vélinni er stýrt af Windows 98/ME, veljið Start iFolder-hakreitinn.
2.3 Stillingar
Þegar iFolder hefur verið ræstur á vinnustöðinni verður að stilla iFolder-búnaðinn á eftirfarandi hátt áður en hægt er að nota hugbúnaðinn.
1. Ræsið Internettenginguna svo hægt sé að skrá sig inn á iFolder-miðlarann og ljúka uppsetningu iFolder-búnaðar á vinnustöðinni.
2. Þegar iFolder-búnaðurinn er ræstur birtist iFolder-táknið í kerfisbakkanum (System Tray; niðri í hægra horni skjáborðsins) ásamt stuttum kynningarskilaboðum. Þegar kynningarskilaboðin hafa verið lesin þarf að velja “Continue”.
3. Til að frumstilla iFolder-reikning, þarf að skrá sig inn á iFolder-miðlarann og gefa upp notendanafn á staðarneti og leyniorð.
DNS-heiti eða IP-númer miðlara birtist sjálfkrafa sem sjálfgefið gildi sem iFolder-kerfisstjóri þinn gefur upp.
Ef af einhverjum ástæðum DNS heiti birtist ekki í "Server" reit á að slá þar inn DNS-heiti iFolder miðlara Skýrr sem er ifolder.skyrr.is
Í fyrsta sinn sem farið er inn í iFolder-miðlarann, þá stofnar iFolder-reikning á iFolder-miðlaranum.
a. (Skilyrt) Ef tengjast þarf iFolder-miðlaranum gegnum proxy server, veljið ”Set Proxy” og síðan ”Use Proxy”, tilgreinið IP-númer eða DNS-heiti og ”Port” á proxy miðlaranum, veljið síðan ”OK”.
Ef þörf er á ætti að vera hægt að nálgast upplýsingar um proxy-stillingar hjá viðkomandi kerfsstjóra.
b. (Frjálst) Til að búa til ”shortcut” flýtivísun í iFolder-skráasafnið á skjáborðinu þarf að velja ”Shortcut”-hakreitinn.
4. Veljið ”Login”.
5. Veljið staðsetningu fyrir iFolder-skráasafnið á harða disknum og veljið síðan “OK”.
Skráasafnið getur verið geymt á mismunandi stöðum á mismunandi tölvum, allt eftir því hvað hentar hverju sinni.
iFolder Skráasafnið má ekki vera vistað á netdrifi eða sameiginlegri möppu á hörðum diski á vinnustöð.
Sjálfgefin staðsetning fyrir Windows XP er c:\documents and settings\username\my documents\ifolder\userid\home. Fyrir Windows 98/ME, er sjálfgefin staðsetning c:\my documents\ifolder\userid\home. Notandanafnið er notandanafnið á vinnustöðinni (t.d. Kerfisstjóri); notandanafnið er iFolder-notandanafnið (oftast það sama og notað er sem notandanafn á staðarneti).
a. (Frjálst) Ef breyta þarf sjálfgefnu staðsetningunni, veljið “Browse” og nýja staðsetningu.
ÁRIÐANDI. Staðsetningarslóðin, að meðtalinni drifslóðinni og bakstriki (\) má ekki vera lengri en 259 stafir. Einnig þarf að athuga, að uppgefna slóðin verður staðsetningin á iFolder-skránum.
b. (Skilyrt) Þegar farið er í iFolder í fyrsta skipti eftir að hugbúnaðurinn hefur verið settur á vinnustöðina, verður að afrita allar þær skrár sem eiga að geymast í iFolder yfir í iFolder-skráasafnið.
6. (Frjálst; en ráðlagt) Ef skrárnar eiga að vera dulritaðar áður en þær eru fluttar og geymdar á iFolder-miðlaranum þarf að velja “Encryption Pass Phrase”, með því að skrifa dulritunar-lykilorð (pass phrase) skrifa hana aftur og síðan staðfesta, að lokum er “OK” valið.
Þegar dulritun hefur verið valin, mun hún virka á öllum vinnustöðvum; ekki verður beðið um þær upplýsingar aftur heldur verður notandi minntur á dulritunarferlið sem verður notað.
iFolder notar dulritunar-lykilorð (Pass Phrase) til að stofna dulritunarkóða sem eru notaðir þegar skrárnar eru fluttar á milli vinnustöðvarinnar og iFolder-miðlarans. Með því að senda gögnin dulrituð er komið í veg fyrir að nokkur annar geti nálgast gögnin. Þó að skrárnar séu ekki dulritaðar á vinnustöðinni eru þær dulritaðar á iFolder-miðlaranum.
7. (Skilyrt eða frjálst; ráðlagt) Ef valið er að dulrita iFolder-skrárnar (sjá kafla 6), er hægt að endurheimta aðgangssetningu hjá kerfisstjóra iFolder (ef það skyldi gleymast) með því að velja ”Pass Phrase Recovery”-hakreitinn og skrifa vísbendingu sem hjálpar að muna dulritunar-lykilorðið.
Þegar þessu er lokið, mun það gilda fyrir allar vinnustöðvarnar, ekki verður beðið um þessar upplýsingar þegar hugbúnaðurinn verður settur upp á öðrum vinnustöðvum.
Kerfisstjóri getur sett iFolder þannig upp að “Pass Phrase Recovery” sé skilyrði. Ef svo er, verður sá valkostur ekki fyrir hendi við uppsetningu iFolder-búnaðar.
8. (Frjálst, ekki ráðlagt) Leyniorðið og “pass phrase” sjálfgefið.
· Muna leyniorð. Í hvert sinn sem tengst er iFolder-miðlara er beðið um leyniorð. Ef óskað er að iFolder muni leyniorðið og ekki þurfi að slá það inn skal velja ”Remember Password” hakreitinn. Ef hakað er við ”Remember Password” mun innskráningarglugginn ekki birtast við innskráningu.
· Muna dulkóðunar-leyniorð “Pass Phrase”. Þegar tengst er iFolder-miðlara er beðið um “pass phase”/dulritunar-leyniorð. Ef óskað er að iFolder muni dulritunar-leyniorðið og þurfi ekki að slá það inn þegar iFolder er ræstur skal velja “Remember Pass Phrase”.
· MIKILVÆGT:Þótt sjálfvirk innskráning sé þægileg er það kannski ekki hentug leið fyrir alla notendur. Þegar tengingu hefur verið náð við iFolder-miðlarann sér hann um að samræma skrárnar með jöfnu millibili. Það geta komið upp aðstæður þar sem samræmingarer ekki óskað, til dæmis ef ekki á að nota mikla bandbreidd.
Ef breyta á þessum stillingum síðar, þarf að hægrismella á iFolder-táknið á ræsiborðanum og velja “Account Information” og síðan “Preferences”, haka við eða taka hakið af “Remember Password” og/eða “Remember Pass Phrase”.
3.0 Notkun á iFolder-búnaði
Þegar iFolder-búnaður hefur verið settur upp á tölvunni ræsist hann upp í hvert sinn sem kveikt er á henni. iFolder-táknið birtist á kerfisbakkanum (System Tray). Tengstu iFolder þegar samræma á skrárnar þínar.
Hægt er að nálgast iFolder-skráasafnið með því að nota sjálfgefinn skráarskoðara. Ef valið er að hafa flýtivísi á skjánum, þarf að tvísmella á flýtivísinn til að fara beint inn á iFolder-skráasafnið. Einnig er hægt að hægri-smella á iFolder-táknið á kerfisbakkanum, velja síðan “Open iFolder” til að nálgast iFolder-skráasafnið.
iFolder-búnaðurinn vinnur í bakgrunninum á meðan þú vinnur á tölvunni þinni. iFolder fylgist með og skráir allar breytingar sem þú gerir á þeim skrám sem eru í iFolder-skráasafninu. Ræstu nettenginguna og skráðu þig inn á iFolder-miðlarann til að hefja samræmingu skráa. iFolder sækir og sendir skrárnar þínar samstundis og örugglega. Hægt er að vera sítengdur og samræma skrárnar samstundis eða tengjast iFolder við og við, allt eftir þörfum.
iFolder-miðlarinn afritar og samræmir skrárnar á milli margra vinnustöðva. Skrárnar eru alltaf varðar á netinu og auðvelt er að nálgast þær ef skrárnar á tölvunni skyldu glatast. Ef tengst er iFolder-miðlaranum frá nýjum stað eða vinnustöð mun iFolder-búnaðurinn uppfæra iFolder-skrárnar á tölvunni sjálfvirkt með þeim skrám sem unnið hefur verið í -- án þess að mannshöndin komi þar nærri.
4.0 Hjálpargögn fyrir iFolder
Til að nálgast hjálp fyrir iFolder-búnaðinn, þarf að hægri-smella á iFolder-táknið í kerfisbakkanum og velja síðan “Help”.
Hjálpargögn má einnig nálgast á vefsvæði iFolder eða Novell.
4.1 Hjálpargögn á iFolder-vefsvæði
Novell iFolder-kerfisstjórinn viðheldur iFolder-vefsvæði með upplýsingum um iFolder-þjónustu. Til að nálgast þetta svæði þarf að hægri-smella á iFolder-táknið og velja vefsvæði iFolder.
4.2 Hjálpargögn á Novell-vefsvæði
Nánari upplýsingar og heilræði um notkun iFolder er að finna hér:
· Novell iFolder End User Guide
http://www.novell.com/documentation/lg/ifolder21/index.html
Handbókina er hægt að skoða á HTML-sniði með vefskoðara. Einnig er hægt að sækja hana á PDF-sniði. Það reynist mörgum notendum þægilegt, þar sem þeir geta prentað handbókina út til aflestrar. Við mælum með Adobe Acrobat Reader 5.0 (eða nýrri útgáfu) til að ná sem bestum árangri. Hægt er að nálgast Adobe-skoðarann á Adobe Web site.
http://www.adobe.com/products/acrobat/readermain.html
· Novell iFolder Cool Solutions
http://www.novell.com/coolsolutions/ifmag
· Novell iFolder Technical Knowledgebase
http://support.novell.com
Kerfiskröfur fyrir iFolder hugbúnaðinn
iFolder búnaður er studdur á eftirfarandi stýrikerfum
- Windows 2000 / XP / 2003 (með .NET 1.1 ásamt öllum leiðréttingum)
iFolder hugbúnaður styður við eftirfarandi netvafra:
- Internet Explorer 5.0 eða nýrri
iFolder hugbúnaðurinn þarf virka Internet tengingu.
Sækja iFolder hugbúnaðinn
1. Eftir að smellt er á hnappinn hér að neðan þá veljið að vista uppsetningarskránna á vinnustöðinni.
2. Finnið uppsetningarskránna þar sem valið var að vista hana.
3. Keyrið uppsetningarskránna t.d. með því að tvísmella á hana.
4. Athugið að best er fylgja uppsetningar leiðbeiningunum án breytinga.
5. Eftir að uppsetningu er lokið þarf að endurræsa vinnustöðina.
6. Forritið ræsist sjálfkrafa eftir endurræsingu.
7. Sláið inn notendanafn (User ID) og lykilorð (Password).
8. Veljið iFolder staðsetningu á hörðum disk.
Þau gögn sem þar eru verða vistuð á iFolder miðlara þegar tenging er orðin virk.
Athugið að sú mappa sem valin er fyrir iFolder má ekki vera sameiginleg mappa (Share), hvorki á neti né á vinnustöð.
ifolder3-windows.exe
iFolder hugbúnaður fyrir Linux umhverfi
Kerfiskröfur fyrir iFolder hugbúnaðinn
iFolder búnaður er studdur af eftirfarandi stýrikerfi:
- Linux
iFolder hugbúnaður styður við eftirfarandi netvafra:
- Internet Explorer 5.0 eða nýrri
iFolder hugbúnaðurinn þarf virka Internet tengingu.
Sækja iFolder hugbúnaðinn
1. Eftir að smellt er á hnappinn hér að neðan þá veljið að vista uppsetningarskránna á vinnustöðinni.
2. Finnið uppsetningarskránna þar sem valið var að vista hana.
3. Keyrið uppsetningarskránna.
4. Athugið að best er fylgja uppsetningar leiðbeiningunum án breytinga. Sjá nánar bls. 33 í leiðbeiningum á ensku.
5. Sláið inn notendanafn (User ID), lykilorð (Password) og miðlara (Server: ifolder3.skyrr.is).
6. Veljið iFolder staðsetningu á hörðum disk.
Þau gögn sem þar eru verða vistuð á iFolder miðlara þegar tenging er orðin virk.
Athugið að sú mappa sem valin er fyrir iFolder má ekki vera sameiginleg mappa (Share), hvorki á neti né á vinnustöð.
iFolder búnaður fyrir MacOS X
Kerfiskröfur fyrir iFolder hugbúnaðinn
iFolder búnaður er studdur af eftirfarandi stýrikerfi:
- MacOS X 10.3
iFolder hugbúnaður styður við eftirfarandi netvafra:
- Internet Explorer 5.0 eða nýrri
iFolder hugbúnaðurinn þarf virka Internet tengingu.
Sækja iFolder hugbúnaðinn
1. Eftir að smellt er á hnappinn hér að neðan þá veljið að vista uppsetningarskránna á vinnustöðinni.
2. Finnið uppsetningarskránna þar sem valið var að vista hana.
3. Keyrið uppsetningarskránna.
4. Athugið að best er að fylgja uppsetningarleiðbeiningunum án breytinga (sjá bls. 35 í leiðbeiningum).
5. Sláið inn notandanafn (User ID), lykilorð (Password) og miðlara (Server: ifolder.skyrr.is).
6. Veljið iFolder staðsetningu á hörðum disk.
Þau gögn sem þar eru verða vistuð á iFolder miðlara þegar tenging er orðin virk.
Athugið að sú mappa sem valin er fyrir iFolder má ekki vera sameiginleg mappa (Share), hvorki á neti né á vinnustöð.
7. Veljið "Passphrase" sem eru lykill til dulritunar á gögnum á miðlara.
8. Kynnið ykkur nánari leiðbeiningar og upplýsingar um notkun iFolder á http://ifolder.skyrr.is

