iFolder
Auðvelt og öruggt aðgengi gagna
iFolder notendur hafa óhindraðan aðgang að mikilvægum skjölum og vinnugögn gegnum Internetið, hvar og hvenær sem er.
Kostir iFolder
- Með iFolder hefur þú aðgang að mikilvægum gögnum óháð því á hvaða tíma þú þarf að nálgast þau.
- Auðvelt aðgengi að skjölum og gögnum hvort sem er heima, í vinnunni og á ferðalögum.
- Aðgangsstýring er einföld og örugg.
- Þú getur verið viss um að þú ert ávallt að vinna í nýjustu útgáfunni hverju sinni.
- Gögnin eru fullkomlega örugg.
- iFolder-þjónustan er einnig óháð hverskonar hugbúnaði og vélbúnaði í MS Windows-umhverfi.
- Afrit eru tekin af gögnum daglega.
Gögn og skjöl sem notendur geyma í sérstakri iFolder-möppu á vinnustað eru sjálfkrafa spegluð og uppfærð í miðlægri gagnageymslu Skýrr og þar er hægt að nálgast skjölin þegar hentar, hvort heldur gegnum tölvur á staðarneti eða hefðbundinn vafra (browser) í öllum tölvum með tengingu við Internetið.
Nánari upplýsingar
skyrr@skyrr.isiFolder þjónusta
iFolder-þjónustan er hraðvirk, þægileg og hagkvæm. Skýrr býður nú áhugasömum notendum áskrift að iFolder með 1,5 GB vinnslu- og geymslurými.

