Hýsing og rekstur
Ef þú ert með kerfin þín í hýsingu og rekstri hjá Skýrr, færð þú hámarks öryggi ásamt föstum rekstrarkostnaði. Hægt er að sníða þjónustuna að þörfum hvers og eins, sama hvort það er aðeins tölvupóstþjónusta eða allt upplýsingakerfi fyrirtækisins. Skýrr getur afritað gögnin þín, prentað fyrir þig, veitt þér aðgang að IP-símstöð, hýst fyrir þig forrit og gögn. Bara að nefna það. Möguleikarnir eru margir, við hvetjum þig því til að senda okkur línu (skyrr@skyrr.is) eða slá á þráðinn (569 5100) til að fara yfir núverandi kerfi og athuga hvort hægt er að ná fram hagræðingu með hýsingar- og rekstrarþjónustu Skýrr.

