Microsoft
Microsoft sérfræðingar Skýrr eru þrautþjálfaðir í Microsoft hugbúnaði og sérlausnum hverskonar. Kynntu þér málið.
Verslunarlausnir
Verslunarlausnum Skýrr er skipt í einingar sem henta mismunandi gerðum verslunarreksturs hvort sem um er að ræða sérvöru, smávöru, vöruhús, heildsölu eða netsölu.
Skýrr hefur lausnir sem henta öllum þáttum verslunarreksturs.
Oracle
Kynntu þér Oracle lausnir og þjónustu Skýrr. Hjá Viðskiptalausnum Skýrr starfar stór hópur sérfræðinga með mikla og fjölbreytta reynslu.
- Fjárhagur
- Eignakerfi
- Viðskiptaskuldir
- Viðskiptakröfur
- Afstemmingar
- Mannauður
Viðskiptalausnir
Viðskiptalausnir bjóða mikla möguleika til virðisaukningar og aukinnar hagkvæmni í rekstri.
Skýrr sérhæfir sig í Microsoft Dynamics NAV og AX og vörum frá Oracle. Einnig er boðið upp á sérlausnir fyrir íslenskan markað.
Viðskiptagreind
Viðskiptagreind er öllum fyrirtækjum mikilvæg í dagi til að fá meiri upplýsingar úr gögnum sínum, upplýsingar sem nýtast í daglegum rekstri, sem og til stefnumótunar.
Skilgreindar skýrslur og greiningarmöguleikar fyrir fjárhag, mannauð, innkaup, aðfangastýringu, verkefni ofl.
Samþætting
Hugbúnaðarlausnir fyrir samþættingu upplýsingakerfa, rafræn samskipti milli fyrirtækja, vefgáttir og skyld viðfangsefni.
Með slíkum tengingum geta fyrirtæki látið gögn flæða sjálfvirkt milli hugbúnaðarkerfa óháð því á hvaða tölvukerfi viðkomandi hugbúnaður keyrir.
Mannauður
Vantar þig lausnir fyrir reksturinn. Skýrr er með frábærar lausnir sem tengjast mannauði, stórar sem smáar, margar hverjar sérhannaðar að íslenskum aðstæðum.
Vaktaáætlunarkerfi, viðverukerfi, starfsmannakerfi og margt fleira.
Veflausnir
Skýrr hefur til fjölda ára verið í fararbroddi við hönnun, forritun og ráðgjöf tengd veflausnum.
Hundruðir af ytri-, innri- og þjónustuvefjum hafa litið dagsins ljós, ýmist í vefumsjónartólinu LiSA, DotNetNuke, Drupal og öðrum open source lausnum.
CRM - viðskiptatenglakerfi
Mikil þekking og reynsla er á innleiðingu á Microsoft CRM lausninni.
Einnig eru til aðrar lausnir sem leysa þarfir til að halda utan um viðskiptamannasögu, s.s. S5-viðskiptatengsl lausnin sem er íslensk.
Sérlausnir
Skýrr hefur til fjölda ára smíðað ýmsar sérlausnir og viðbætur við ýmis kerfi fyrir viðskiptavini sína.
Þekking á þörfum viðskiptavina og möguleikum upplýsingatækni í stóru samhengi er eitt af sérkennum Skýrr. Hafðu samband ef við getum aðstoðað.
Skjala- og gæðakerfi
Skýrr býður upp á fjölda kerfa og lausna til að aðstoða fyrirtæki við skjalavistun og stjórnun. Ekki henta öllum sömu lausnir, svo best er að kynna sér málið hjá sérfræðingum Skýrr.
Sem dæmi má nefna málakerfi, skjalavistunarkerfi og einnig kerfi til að halda utan um og birta gæðakerfi.
Öryggislausnir
Skýrr er leiðandi aðili hér á landi í hvers konar öryggislausnum á sviði upplýsingatækni og býður lausnir sem tryggja að hægt er að eiga örugg samskipti yfir Internetið.
Skýrr er umboðs- og þjónustuaðili VeriSign og Thawte á Íslandi. Kynntu þér málið.